Glæsileg byrjun lagði grunninn að sigrinum

Eyjamenn tryggðu sér í kvöld sæti í umspili Íslandsmótsins um eitt laust sæti í úrvalsdeild næsta vetur. ÍBV lagði Víking að velli í kvöld, 32:22 en með því tryggðu Eyjamenn sér í það minnsta fjórða sæti deildarinnar. Reyndar eiga Eyjamenn enn möguleika á þriðja sætinu og leika hreinan úrslitaleik um sætið gegn Stjörnunni í Garðabæ […]
Met allt mun betur sem ég hef

Herdís Gunnarsdóttir, tvítug Eyjastelpa, hleypti heimdraganum í upphafi árs. Ferðinni var heitið heimshorna á milli en Herdís hafði skráð sig í ferð sjálfboðaliða sem áttu að aðstoða fátæka í Indlandi og Kenýa. Herdís hélt úti bloggsíðu meðan á ferðinni stóð en þar kom fram að hún fékk að upplifa ótrúlega mikla og sára fátækt sem […]
Krakkar í ÍBV búningi geta unnið páskaegg

ÍBV strákarnir keppa mikilvægan leik í handboltanum í kvöld kl.19:30. Þá mæta þeir Víkingi hér í Eyjum. Þeir þurfa stuðning áhorfenda, en það hefur aldrei staðið á honum þegar mikið liggur við hér í Eyjum. (meira…)
Ákall vegna Landeyjahafnar

Heill og sæll Ögmundur. Ég rita þér þetta bréfkorn sem reiður Eyjamaður og ekki síður sem reiður skattborgari þessa lands. Ég er ekki reiður náttúruöflunum né byrjunarörðugleikum við þessa nýju höfn. Ég er fyrst og fremst reiður yfir þeim vinnubrögðum sem starfsmenn Siglingastofnunar stunda og þeirri lítilsvirðingu sem þeir sýna okkur. (meira…)
Mikilvægasti leikur vetrarins í kvöld

Karlalið ÍBV í handbolta leikur einn mikilvægasta leik sinn í kvöld klukkan 19:30 þegar strákarnir taka á móti Víkingum í næst síðustu umferð 1. deildar. Víkingar eru fjórum stigum á eftir ÍBV, sem er í fjórða sæti en liðin í öðru, þriðja og fjórða sæti fara í umspilið ásamt Aftureldingu sem var næst neðst í […]
Hermann með ÍBV í sumar

Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson mun leika með ÍBV í sumar. Hermann, sem hefur náð sér afar vel af erfiðum meiðslum, hefur verið einn af lykilmönnum enska 1. deildarliðsins Portsmouth í vetur eftir að hann byrjaði að spila að nýju. Hermann lék einnig að nýju með íslenska landsliðinu gegn Kýpur á dögunum en hann mun vera væntanlegur […]
Sigurður Ari fer frá Elverum til Bodö

Sigurður Ari Stefánsson, handknattleiksmaður úr Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að yfirgefa norska úrvalsdeildarliðið Elverum í sumar og hefur gert samning við Bodö sem leikur í næstefstu deild. Sigurður Ari, sem er örvhent skytta, hefur leikið með Elverum undanfarin sex ár og hefur verið einn af lykilmönnum liðsins. (meira…)