Skoðaðu yfir 600 myndir frá Sumarstúlkukeppninni

Sumarstúlkukeppnin var haldin með pompi og prakt um síðustu helgi í Höllinni. Stelpurnar fjórtán sem tóku þátt í keppninni stóðu sig með mikilli prýði en að lokum var Sara Rós Einarsdóttir valin Sumarstúlka Vestmannaeyja 2011. Þeir Ómar Garðarsson og Óskar Pétur Friðriksson mynduðu báðir keppnina í bak og fyrir en hér að neðan er hægt […]
Stórglæsileg dagskrá um helgina

Sjómannadagshelgin hefst með formlegum hætti á morgun, föstudag með hinu árlega knattspyrnumóti áhafna sem fer fram á Þórsvellinum. Eftir það tekur hver dagskrárliðurinn við af öðrum og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. M.a. verður boðið upp á tónleika, myndlistasýningar, skemmtikvöld með mat, söngkvöld, Sjómannafjör við Friðarhöfn, hátíðardagskrá á Stakkó og margt […]
Stórgóðir Oddgeirstónleikar

Í gærkvöldi voru haldnir stórgóðir tónleikar helgaðir tónlist Oddgeirs Kristjánssonar en í ár eru 100 ár frá fæðingu Oddgeirs. Tónleikarnir, sem báru yfirskriftina Vor við sæinn, minningartónleikar um Oddgeir, voru jafnframt söfnunartónleikar en allur ágóði tónleikanna rann til þeirra Hólmfríðar Sigurpálsdóttur og Styrmis Gíslasonar, sem misstu einbýlishús sitt vegna veggjatítlu. Um 300 manns sóttu tónleikana […]
Stöðin lokuð á nóttunni

Á félagsfundi Lögreglufélags Vestmannaeyja á þriðjudaginn var samþykkt ályktun þar sem mótmælt er harðlega þeim skipulagsbreytingum sem boðaðar hafa verið hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum, en samkvæmt þeim þá munu einungis átta lögreglumenn vera starfandi í Vestmannaeyjum, þar af sex sem ganga vaktir. (meira…)
Vestmannaeyjar í úrslitum

Vestmannaeyjar komust ásamt Akureyri áfram í keppni um að fá útnefninguna Norrænt orkusveitarfélag. Frosti Gíslason verkefnastjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands í Vestmannaeyjum staðfesti þetta í samtali við Fréttir. (meira…)