Spear jafnaði metin í uppbótartíma

Aaron Spear, enski framherjinn sá til þess að toppliðin tvö, KR og ÍBV skildu jöfn 2:2 með marki í uppbótartíma. KR-ingar komust tvívegis yfir en Tryggvi Guðmundsson jafnaði metin 1:1 með glæsilegasta marki sumarsins, skoti beint úr aukaspyrnu og upp í markvinkilinn. Jafntefli þýðir að enn munar tveimur stigum á liðunum tveimur en KR-ingar eiga […]

�?tilokar ekki aðkomu bæjarins

„Í þessum orðum mínum felast hugrenningar um það hvort það sé ekki æskilegt að Vestmanna­eyja­bær hafi einhvers konar að­komu að mannvirkinu. Við eigum jú öll Dalinn saman,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri þegar hann var spurður um hugsanlega að­komu bæjarins að byggingu stóra sviðsins í Herjólfsdal. (meira…)

Eyjamenn ætla að fjölmenna í Frostaskjólið

Í kvöld klukkan 18:00 verður einn mikilvægasti leikur Pepsídeildarinnar þegar ÍBV sækir KR heim í Frostaskjólið. KR-ingar eru á toppi deildarinnar með tveggja stiga forskot á ÍBV sem er í öðru sæti. KR-ingar eiga auk þess leik inni á ÍBV og tvö leiki á flest önnur lið. Þeir eru því í bestu stöðunni á toppnum […]

Skemmdirnar reyndust minniháttar

Starfsmenn Sorpu í Vestmannaeyjum tilkynntu um eignaspjöll til lögreglunnar í Vestmannaeyjum um klukkan 19 í gærkvöldi. Skemmdirnar reyndust minniháttar, en rúða var brotin í vinnuskúr á athafnasvæði Sorpu. (meira…)

Flora aftur í ÍBV?

Á vefnum www.sport.is segir að handknattleiksmarkvörðurinn sterki, Florentina Stanciu sé búin að semja við ÍBV um að leika með liðinu á komandi tímabili. Flora, eins og hún er kölluð, er rúmensk og kom upphaflega til landsins til að spila með ÍBV og gerði það í tvö ár áður en hún gekk í raðir Stjörnunnar. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.