Upptökumannvirki, lestarband og Björgvinsbeltið

Sjávarútvegssýningin fer fram í Smáranum í Kópavogi dagana 22. til 24. september. Fyrirtæki í Vestmannaeyjum ætla að kynna starfsemi sína í sameiginlegum bás og þar af eru Vestmannaeyjahöfn, Vélaverkstæðið Þór, Björgvinsbeltið og Ísfélagið. Önnur fyrirtæki eru Skipalyftan, Eyjablikk, Godthaab í Nöf, Oceanus Gourmet ehf. og Vinnslustöðin. (meira…)
Skiptar skoðanir í bæjarstjórn um stúku

Stúkumálið var tekið fyrir á bæjarstjórnarfundi í gærkvöldi en ljóst er að ef ekkert verður gert varðandi áhorfendastæði við Hásteinsvöll, mun karlalið ÍBV leika heimaleiki sína annarsstaðar. Meirihluti lagði fram tillögu þess efnis að bæjaryfirvöld leggi til framlög til að bæta áhorfendastæði við Hásteinsvöll til jafngildis framlags KSÍ, sem er á bilinu 10-12 milljónir. Tillagan […]
ÍBV spáð sigri í 1. deildinni í vetur

ÍBV er spáð sigri í 1. deild karla í handbolta í vetur í spá þjálfara, fyrirliða og formanna liðanna í deildinni. ÍBV fékk 165 stig í kjörinu en Stjarnan varð í öðru sæti með 158. ÍR var svo í þriðja sæti með 138. Efsta lið 1. deildarinnar fer beinustu leið upp í úrvalsdeild á meðan […]
ÍBV ofarlega á blaði

Sóknarmaðurinn Eyþór Helgi Birgisson, leikmaður HK er að öllum líkindum á förum frá félaginu en á Fótbolti.net kemur fram að hann stefni á að spila í Pepsídeildinni á næsta ári. Eyþór Helgi lék með ÍBV síðasta sumar og seinni hluta sumars 2009 en hann segist vera spenntu fyrir því að ganga í raðir Eyjaliðsins. (meira…)