Siglt til �?orlákshafnar í næstu viku

Herjólfur mun í næstu viku sigla til Þorlákshafnar. Þetta kemur fram í tilkynningu en í henni kemur fram að vísbendingar séu um að dýpi í hafnarmynninu hafi minnkað vegna óveðurs undanfarna daga og öldugangs við Landeyjahöfn, þannig að Herjólfur getur ekki siglt þangað inn. (meira…)

Naumur sigur á Gróttu í fyrsta leik

Stelpurnar í handboltaliði ÍBV byrjuðu tímabilið vel þegar þær tóku á móti Gróttu í íþróttamiðstöðinni í dag. Fresta varð leiknum um fimm klukkustundir þar sem Gróttuliðið komst ekki í tæka tíð til Eyja og fór leikurinn fram klukkan 17 í stað 12. Eyjastúlkur byrjuðu mun betur í leiknum en staðan í hálfleik var 15:15. Lokatölur […]

Evrópusætið er Eyjamanna

Það var ekki hægt annað en að samgleðjast Grindvíkingum eftir sigur þeirra á ÍBV á Hásteinsvelli í dag. Grindvíkingar þurftu nauðsynlega sigur til að halda sér í deildinni og sigur höfðu þeir 0:2 en bæði mörkin komu á síðustu tíu mínútum leiksins. Eyjamenn voru um leið nærri búnir að missa Evrópusætið til Stjörnunnar en Stjarnan […]

Stelpurnar spila klukkan 17:00

Leikur ÍBV og Gróttu í 1. umferð N1 deildar kvenna fer fram klukkan 17:00 í dag. Leikurinn átti upphaflega að fara fram klukkan 12:00 en þar sem Baldur sigldi ekki fyrstu ferð í dag, þá komst Gróttuliðið né dómarapar leiksins til Eyja í tæka tíð. Eyjaliðið hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi átök og verður […]

Baldur siglir í dag

Nú er óveðrinum að ljúka og ölduhæð við Landeyjahöfn er að lækka. Búið er að taka ákvörðun þess efnis að Baldur muni sigla í dag en skipið fór ekki í morgunferðina. Skipið fer í fyrst ferð frá Eyjum klukkan 11:30, 16:00 og 20:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 13:00, 19:00 og 21:30. (meira…)

Fjórtán milljóna króna leikur

Síðasta umferð Pepsídeildar karla fer fram í dag, laugardag klukkan 14:00 en þá tekur ÍBV á móti Grindavík á Hásteinsvelli. Það er ekki lítið í húfi því Grindvíkingar eru í fallsæti og þurfa helst öll þrjú stigin til að eiga von um að halda sæti sínu í deildinni. Það er ekki minna undir hjá ÍBV […]

Leik ÍBV og Gróttu frestað

Í dag klukkan 12:00 átti kvennalið ÍBV að leika sinn fyrsta leik á þessu tímabili í N1 deildinni þegar Grótta átti að koma í heimsókn. Hins vegar er ljóst að leikurinn mun ekki hefjast klukkan 12:00 þar sem Baldur sigldi ekki milli lands og Eyja í morgun. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.