Haukur og Teddi valdir í U-20

Tveir af efnilegustu handboltamönnum ÍBV, þeir Theodór Sigurbjörnsson og markvörðurinn Haukur Jónsson hafa verið valdir í landslið Íslands skipað leikmönnum 20 ára og yngri. Um er að ræða æfingahóp en liðið mun taka þátt í Opna Norðurlandamótinu í Noregi dagana 3.-6. nóvember. (meira…)
�??�?ingmennirnir komnir fram�??

Þingmenn Suðurkjördæmis, sem auglýst var eftir í heilsíðu auglýsingu í Morgunblaðinu, eru komnir í leitirnar og ætla að funda með bæjarfulltrúum í Vestmannaeyjum og íbúum sem vilja stuðla að bættum samgöngum til og frá Eyjum eftir helgi. Fundurinn verður lokaður. Þetta kemur fram á www.mbl.is. (meira…)
Opnun Landeyjahafnar hefur mikil áhrif í Eyjum

Opnun Landeyjahafnar hefur mikla þýðingu fyrir Eyjamenn enda sáu íbúar bæjarins glögg merki þess að höfnin var opnuð á ný því ferðamönnum fjölgaði um leið, svo um munaði. Sem dæmi eru í dag í Eyjum 174 breskir skólakrakkar á vegum ferðaskrifstofunnar Iceland Excursions og von er á fleirum næstu vikur. (meira…)