Ný Vestmannaeyjaferja eigi síðar en 2015

Fulltrúar innanríkisráðuneytis, Siglingastofnunar, Vegagerðar og Vestmannaeyjabæjar ræddu um siglingar milli lands og Eyja á fundi í ráðuneytinu í dag. Leitað er framtíðarlausnar á þessum siglingum til að tryggja öruggar ferðir milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. (meira…)

Stefna að því að opna Eymundsson að nýju eftir helgi

Erla Halldórsdóttir, verslunar­stjóri í Eymundsson, sagði að að­koman um nóttina hefði verið hræðileg. „Í mínum huga skiptir mestu að allir sluppu ómeiddir frá þessum bruna. Ég er auðvitað búin að vera þarna meira og minna allt síðastliðið ár og þetta er nánast búið að vera mitt annað heimili. Mér sýnist að norðurhluti versl­unarinnar hafi sloppið […]

Geisli selur einnig Apple vörur

Vegna fréttar í Eyjafréttum í gær, um sölusamning Skakkaturns og Upprisu Tölvunar, vill Skakkiturn ehf., umboðsaðili Apple á Íslandi taka fram, að í Vestmannaeyjum sér Geisli Faxi á Hilmisgötu einnig um sölu á Apple vörum. Engin breyting er fyrirhuguð á því samstarfi, sem hefur gengið með ágætum undanfarin tvö ár. (meira…)

Aftur kviknað í Drífanda

Klukkan sjö í morgun var Slökkvilið Vestmannaeyja kallað út að nýju að húsinu Drífanda í miðbæ Vestmannaeyja en þar hafði eldur blossað upp að nýju. Eldur kviknaði í húsinu í nótt en slökkvistarf þá tók um klukkustund. Húsið var vaktað af lögreglu og slökkviliðsmönnum en allt tiltækt slökkvilið var kallað á ný á staðinn til […]

Mikill eldur í Drífanda

Allt tiltækt slökkvilið var kallað út rétt rúmlega þrjú í nótt en eldur hafði blossað upp í húsinu Drífandi við Strandveg. Í húsinu, sem er að hluta á fjórum hæðum, er rekið hótel, Hótel Eyjar en á jarðhæð hefur verslunin Eymundsson aðstöðu. Gríðarmikill reykur var þegar slökkvilið Vestmannaeyja kom að en stuttu síðar gusu eldtungurnar […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.