Eyjamenn gætu lagt upp undir níu milljarða til þjóðarbúsins í loðnu

Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, hefur ákveðið aflamark í loðnu í samráði við Hafrannsóknastofnunina sem lagði til að heildaraflamark á vertíðinni verði 765 þúsund tonn. Er það 33 þúsund tonnum umfram þær spár sem lágu til grundvallar bráðabirgðaaflamarki. Hlutdeild Vestmannaeyinga er tæp 170 þúsund tonn sem gæti skilað allt að 10 milljarða verðmæti. Stefnir í að […]
Gengið til samninga við Hjallastefnuna ehf

Á fundi Fræðslu- og menningarráðs í gær var tekin fyrir ályktun stýrihóps vegna útboðs á rekstri leikskólans Sóla. „Eftir að hafa metið tilboðin sem bárust hefur stýrihópur komist að eftirfarandi niðurstöðu: Af þeim þremur tilboðum sem bárust vegna útboðs rekstrar leikskólans Sóla voru tvö sem uppfylltu öll skilyrði sem sett voru í útboðsforsendum. Stýrihópurinn mælir […]
Eyjamenn snöggir að hala inn fyrir Landeyjahöfn og nýrri ferju

Gjaldeyristekjur sem Vestmannaeyingar skapa á tíu vikna loðnuvertíð stefna í að verða álíka miklar og kostnaður við bæði Landeyjahöfn og nýjan Herjólf. Skip Vinnslustöðvarinnar, Sighvatur Bjarnason, sést á myndum Gísla Óskarssonar, sem sýndar voru í fréttum Stöðvar 2, sigla inn til Vestmannaeyja síðastliðið laugardagskvöld með tólfhundruð tonn af loðnu en skipið er síðan aftur væntanlegt […]
Íhuga að flytja út sorp

Vestmannaeyjabær íhugar að flytja sorp til útlanda, til brennslu. Að óbreyttu verða sorpbrennslustöðvar í Eyjum og á Kirkjubæjarklaustri ólöglegar um næstu áramót. Umhverfisráðherra vill fella úr gildi undanþágur eldri sorpbrennslustöðva. (meira…)