Sex Eyjastelpur í Ungfrú Suðurland

Sex Eyjastúlkur taka þátt í keppninni Ungfrú Suðurland, sem mun fara fram á Hótel Selfossi föstudaginn 30. mars næstkomandi. Þetta eru þær Sara Rós Einarsdóttir, Guðrún María Guðbjörnsdóttir, Þóra Fríða Ólafsdóttir, Þórhildur Ósk Stefánsdóttir, Arney Lind Helgadóttir, Eva Dögg Davíðsdóttir. Alls taka 15 stúlkur þátt í keppninni víðs vegar af landinu (meira…)

Kári Kristján áfram hjá Wetzlar

Línumaðurinn Kári Kristján Kristjánsson hefur skrifað undir nýjan samning við þýska 1. deildarliðið Wetzlar um að leik með því fram á mitt næsta ár. Kári hefur verið í herbúðum liðsins síðustu tvö árin. Frá þessu er greint á vefsíðunni handball-world. Kári lék áður í félagsliðið í Zürich í Sviss en einnig með Haukum og ÍBV […]

Fjör í Framhaldsskólanum

Nú eru í gangi í Framhaldsskólanum svokallaðir Skapandi dagar, sem tóku við af opnum dögum eins. Á Skapandi dögum taka nemendur og kennarar skólans sér frí frá námsbókunum og taka sér fyrir hendur annarsskonar verkefni innan veggja skólans. M.a. er starfandi matarklúbbur, árshátíðarhópur, listahópur, tónlistarhópur og útvarpshópur en útvarp skólans er á fm 104,7. (meira…)

Forsala á uppistand hófst í dag

Forsala á uppistand þeirra Þorsteins Guðmundssonar og Péturs Jóhanns Sigfússonar verður í Höllinni föstudaginn 9. mars næstkomandi. Forsala á uppistandið hófst í dag, fimmtudaginn 1. mars í Axel Ó. „Þú þarft að mæta með bleyju á þessa sýningu því þú átt eftir að míga í þig úr hlátri,“ segir í fréttatilkynningu Andersen viðburða, sem flytur […]

ÍBV Íþróttafélag og Flugfélagið Ernir halda samstarfi áfram

Í síðustu viku var undirritaður samningur milli ÍBV Íþróttafélags og Flugfélagsins Ernis. Félögin hafa átt í góðu samstarfi síðastliðið ár og því lá beint við að framlengja samstarfssamninginn. Flugfélagið Ernir hóf áætlunarflug til Vestmannaeyja í ágúst 2010 og hefur Ernir kappkostað það að þjónusta Vestmannaeyjar sem best með miklum sveigjanleika. ÍBV Íþróttafélag er stærsti einstaki […]

Mælingar og væntingar stóðust ekki

Á fundi sjálfstæðismanna á laugar­daginn upplýsti Árni Johnsen, al­þingismaður að í viðræðum hans við Siglingastofnun hefði komið fram að þar á bæ er staðfest að útreikn­ingar tengdir straumum og sand­flutn­ingi og þær væntingar sem menn höfðu til Landeyjahafnar hafi ekki staðist. Nýtt líkan af höfninni verði gert á árinu og í framhaldi af því verði […]

Albert hættur

Markmaðurinn Albert Sævarsson segir í samtali við Fótbolta.net að hann sé hættur og að markmannshanskarnir séu komnir upp í hilluna góðu. Albert hefur varið mark ÍBV síðan 2008 en þessi 38 ára markmaður gerði reyndar gott betur því um tíma var hann vítaskytta liðsins. „Ég hef ekkert verið að æfa. Þetta verður erfiðara og erfiðara […]

Aukaflug til Eyja

Eins og svo oft áður hefur Flugfélagið Ernir brugðist við eftirspurn á flugi til Eyja. Sett hefur verið upp aukaflug í dag, fimmtudag kl 14:15 til Eyja og frá kl 15:00. Einnig er nú þegar búið að setja aukaflug upp á sama tíma á morgun, föstudaginn 2. mars. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.