Massarnir klárir í Hressómeistarann 2012

Á morgun, klukkan 9:00 hefst keppnin Hressómeistarinn 2012 í líkamsræktarstöðinni Hressó. Massarnir, sem er hópur vaskra og limafagurra sveina sem æfa í stöðinni, hafa verið allt að því einráðir í karlakeppninni og telja sigurinn nokkuð vísan í ár. Venjulegu fólki er velkomið að koma og fylgjast með Mössunum og sérstaka athygli er vakin á því […]

Steini, Pési og gaur á trommum lentir í Eyjum

Í kvöld, klukkan 20:00 verður uppistandið Steini, Pési og gaur á trommum í Höllinni en það eru þeir Pétur Jóhann og Þorsteinn Guðmundsson, ásamt trymblinum Helga Svavari sem skemmta. Síðast þegar þeir félagar heimsóttu Eyjarnar var fullt út að dyrum og mikið hlegið. Eyjafréttir.is heyrðu í Pétri Jóhanni og trufluðu hann við að leggja dúk […]

Herjólfur fer seinni ferð dagsins

Herjólfur mun sigla síðari ferð dagsins samkvæmt tilkynningu frá rekstraraðila skipsins, Eimskip. Skipið sigldi ekki fyrri ferð dagsins vegna óveðurs og ölduhæðar. Farþegar mega búast við töluverðum veltingi en mæta 30 mínútum fyrir brottför. (meira…)

Tveir fyndnustu menn landsins á leið til Eyja

Tveir fyndnustu menn landsins eru á leið til Eyja í dag, þeir Pétur Jóhann og Þorsteinn Guðmundsson. Þeir félagar ætla að kitla hláturtaugar Eyjamanna í Höllinni í kvöld ásamt gaur á trommu. Fyrir þremur árum var fullt út úr dyrum í Höllinni þegar þeir kíktu við og var liðið borið út á börum sökum krampa […]

Ánægð með að endurskoða eigi reglur um daggæslumál

Á fundi Fræðsluráðs Vestmannaeyjabæjar var tekið fyrir bréf frá foreldrum barna í Vestmannaeyjum en Anna Rós Hallgrímsdóttir skrifaði fyrir hönd foreldrana. Í löngu og ítarlegu svari um ágæti daggæslumála í Eyjum, segir svo að ráðið leggi það til að umræddar reglur fari í endurskoðun haustið 2012. Anna Rós segist ánægð með að endurskoða eigi reglur […]

Sami fjöldi ferða fallið niður

Herjólfur hefur siglt til Þor­láks­hafnar það sem af er árinu og að sögn Gunnlaugs Grettissonar, ­rekstarstjóra Herjólfs, hafa 11 ­ferðir verðið felldar niður á þessu ári. Margir hafa undrað sig á hve oft ferðir hafa verið felldar niður á þessu ári en Herjólfur sigldi ekki á miðvikudag, enda vitlaust veður og haugasjór. Samkvæmt upplýs­ingum Gunnlaugs […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.