Florentina varði 27 skot gegn Stjörnunni

Florentina Stanciu var heldur betur í banastuði gegn sínu gamla félagi úr Garðabænum, Stjörnunni þegar liðin mættust í næst síðustu umferð N1 deildar kvenna. Florentina varði hvorki fleiri né færri en 27 skot, þar af eitt víti en ÍBV hafði betur í leiknum 30:24. Eins og gefur að skilja, var það fyrst og fremst góður […]

Hvert á að stefna atvinnugrein sem við stólum mest á?

„Mér sýnist að frumvarpið um stjórn fiskveiða sé nokkuð í anda þess sem boðað hefur verið að undanförnu. Tveir pottar niðurnegldir til fram­tíðar. En eitt stingur í augu fremur en annað. Það er ef mikil aflaaukning verður. T.d. ef þorskaflinn fer yfir 202.000 tonn þá fær litla kerfið til sín 60% af aukningunni. Alveg forkastanlegt […]

�?etta er ósanngjarnt!

Stjórn Mýrarboltafélags Íslands mótmælir harðlega þeim forréttindum sem Eyjapeyjar hafa fengið umfram okkur Ísfirðinga í samskiptum við Vegagerðina og Herjólf. Eyjamenn hafa dottið niður á snilldarfléttu með því að kaupa upp alla miðana í Herjólf um verslunarmannahelgi og þrátt fyrir að við berum mikla virðingu fyrir hugmyndaauðgi, erum við sárir og svekktir yfir að fá […]

�?leyfileg þjóðhátíðargisting seld

Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum hefur ekki fengið umsókn frá þjóðhátíðarnefnd um leyfi fyrir gistingu í íþróttahúsi bæjarins sem byrjað er að selja í forsölu. Þjóðhátíðarnefnd hefur keypt níu af hverjum tíu miðum í Herjólf dagana fyrir og eftir hátíðina fyrir rúmar 11 milljónir króna. (meira…)

�?rslitaleikur um þriðja sætið í kvöld

Í kvöld klukkan 19:30 tekur kvennalið ÍBV á móti Stjörnunni í N1 deildinni. Leikurinn er nánast úrslitaleikur um þriðja sæti deildarinnar en staðan er þannig að ÍBV er í þriðja sætinu með 18 stig en Stjarnan er í því fjórða með 16 stig. Sigur hjá ÍBV gulltryggir þeim þriðja sætið. (meira…)

Jet Black Joe með tónleika í Höllinni

Rokksveitin íslenska Jet Black Joe munu halda risatónleika í Höllinni miðvikudaginn 4. apríl næstkomandi. Allir Eyjamenn, sem eitthvað hafa fylgst með tónlist undanfarna áratugi, kannast við Jet Black Joe en um sannkallaðan stórviðburð er að ræða. Með í för verður Sigga Guðna, sem söng lagið Freedom með strákunum en lagið er eitt vinsælasta rokklag Íslands […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.