Tvö dæluskip að störfum í Landeyjahöfn

Nú er róið að því öllum árum að opna Landeyjahöfn. Aðstæður til dýpkunar eru ákjósanlegar og hafa verið góðar síðustu daga. Tvö dæluskip eru við dýpkunarframkvæmdir við Landeyjahöfn, Skandia og Sóley en ekki er líklegt að það náist fullnægjandi dýpi fyrir Herjólf fyrir páska, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Siglingastofnun. Hins vegar er það í […]

Sló mann með bjórflösku í höfuðið

Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið og var þó nokkur erill vegna hinna ýmsu mála sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram fyrir utan líkamsárs sem átti sér stað aðfaranótt sl. laugardags. (meira…)

�?lafur verður skipstjóri og Svanur yfirvélstjóri

Nýtt uppsjávarskip Ísfélags Vest­mannaeyja, Heimaey VE 1, sem hefur verið í smíðum hjá ASMAR-skipasmíðastöðinni í Chíle verður væntanlega afhent um miðjan apríl. Skipið er hið fullkomnasta og af nýrri kynslóð uppsjávarskipa. Það er rúmlega 71 metri að lengd og 14,40 metra breitt. Burðargeta þess er um tvö þúsund tonn í tíu tönkum, sem eru með […]

Mikið tap með veiðigjaldi

Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, yfirleitt kallaður Binni í Vinnslustöðinni, segir að hefði hér verið veiðigjald, eins og gerð er tillaga um í nýju frumvarpi sjávarútvegsráðherra, þá hefði verið bullandi tap á íslenskri útgerð á árunum 2000-2010, að báðum árunum meðtöldum. Hann kveðst standa við orð sín um að til standi að þjóðnýta […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.