Markalaust jafntefli gegn Blikum

Eyjamenn gerðu markalaust jafntefli í kvöld þegar Breiðablik kom í heimsókn. Aðstæður voru allar hinar ákjósanlegustu í kvöld, ágætis veður, hæg gola og völlurinn kemur sérlega vel undan vetri. Leikurinn var ágætis skemmtun en mörkin vantaði sárlega. Eyjamenn voru í heildina sterkari aðilinn en Blikar hefðu vel getað stolið sigrinum undir lokin. (meira…)

Heilsugæslan senn tilbúin eftir endurbætur

Framkvæmdum við endurnýjun heilsugæslunnar í Eyjum miðar vel áfram og verður væntanlega lokið á tilsettum tíma, um mánaðamótin maí/júní. Okkar maður á staðnum, Halldór Halldórsson fór í rölt um heilsugæsluna með vídeóvélina sína tók þessar myndir af framkvæmdunum. (meira…)

Hátíð í Eyjum við komu Heimaeyjar

Heimaey VE 1, nýtt skip Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, er væntanleg til Eyja um hádegi á þriðjudag. Síðdegis á þriðjudag er ráðgert að skipið verði sýnt bæjarbúum og gestum. Skipið var smíðað í Asmar, skipasmíðastöð sjóhersins í Talcahuano skammt frá Concepcion í Síle, og er fyrsta nýja uppsjávarskipið sem bætist í íslenska flotann í mörg ár. […]

Galdrakarlinn í Oz hjá LV í dag

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir í dag barnaleikritið Galdrakarlinn í Oz í leikstjórn Zindra Freys Ragn­arssonar. Leikritið er einstakt að því leytinu að það eru einungis börn á aldrinum 10 til 12 ára sem leika en það er í fyrsta sinn sem félagið setur slíka sýningu á fót. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.