Karlakórinn Söngbræður í Höllinni í kvöld

Karlakórnum Söngbræður úr Borgarfirði heimsækir Eyjarnar í kvöld, föstudaginn 8. júní. Ákveðið hefur verið að halda söngskemmtun í Höllinni, kl. 21:00. Stjórnandi kórsins er Viðar Guðmundsson, en hann er ættaður úr Borgarfirði, en býr nú með sauðfé á Ströndum, en er auk þess kórstjóri, organisti, píanóleikari og tónlistarkennari. (meira…)
Minningartónleikar um �?svald Salberg

Næstkomandi laugardag, klukkan 21:00 verða haldnir tónleikar sem bera nafnið Hjartalag. Tónleikarnir eru minningartónleikar til styrktar Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna en tónleikarnir eru haldnir til minningar um drenginn Ósvald Salberg Tórshamar, sem lést aðeins 10 mánaða gamall í júní 1999 vegna hjartagalla. (meira…)
Fæstir sögðust ætla að flytja frá Vestmannaeyjum

Byggðastofnun hefur gefið út skýrslu sem ber heitið: Samfélag, atvinnulíf og íbúaþróun í byggðarlögum með langtíma fólksfækkun. Í skýrslunni eru tekin til skoðunar svæði þar sem íbúum hefur fækkað um 15 prósent eða meira á síðustu 15 árum. Alls eru þetta 30 sveitarfélög og þar á meðal eru Vestmannaeyjar. (meira…)
Vötnin, árnar og jarðhitinn hljóta líka að vera þjóðareign

Mikil umræða um sjávarútvegsmál fer nú fram í þjóðfélaginu, ekki síst í netmiðlum. Þar láta margir „spekingar“ ljós sitt skína. Ég er í hópi starfsfólks í sjávarútvegi og er stolt af því. Ég vinn hjá vel reknu sjávarútvegsfyrirtæki sem hefur keypt allar þær veiðiheimildir sem það ræður yfir. Ég fæ alls ekki skilið hvernig stjórnarþingmenn […]
Hvetjum alla, sem tök hafa á til að klæðast þjóðbúningi á 17. júní

Nú styttist í þjóðhátíðardag landsins 17. júní. Dagurinn ber að þessu sinni uppá sunnudag, sem gerir hann enn hátíðlegri. Ég hef fengið uppástungur um að gaman væri að sjá sem flesta í þjóðbúningum að þessu sinni. Ég skora hér með á alla, jafnt karla, sem konur, Íslendinga, sem útlendinga að skarta þjóðbúningum sínum á Stakkó […]
Lítilsvirðing sjávarútvegsráðherra í garð sjómanna

Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra með meiru sýndi sjómönnum Íslands ótrúlega lítilsvirðingu og dónaskap í sjómannadagsræðu sinni í Ríkisútvarpinu á sjómannadaginn um síðustu helgi. Hroki hans og geðþóttajafnræði er mikið áhyggjuefni. Steingrímur sagði í sjómannadagsræðunni að sér hefði ekki þótt skemmtilegt að taka ákvörðun um að afnema sjómannaafsláttinn, en hann hefði gert það til þess að […]
Tuttugu ár frá komu Herjólfs

Tuttugu ár verða liðin á morgun frá því að Vestmannaeyjaferjan Herjólfur hóf að sigla á milli lands og Eyja. Guðlaugur Ólafsson, skipstjóri Herjólfs, segir að engin formleg hátíðarhöld verði í tilefni dagsins en þó verði boðið upp á ís og blöðrur fyrir börnin um borð. (meira…)