�??Brennan á Fjósakletti verður ákaflega falleg í ár�??

Finnbogi Gunnarsson hefur verið brennukóngur á Þjóðhátíð frá árinu 1995 er hann tók við að Sigurði Reimarssyni sem hafði þá um áratugaskeið tendrað í brennunni á Fjósakletti við upphaf Þjóðhátíðar í Herjólfsdal. Finnbogi og Elínborg Tryggvadóttir, hans ektakona, voru á ferð í Dalnum á dögunum að fylgjast með gangi mála við undirbúning Þjóðhátíðar. (meira…)
Hægt að fljúga ódýrt frá Eyjum

Hægt er að bóka flug allt niður í 3900 aðra leið með sköttum frá Eyjum á föstudag og til Eyja á mánudag. Þar sem straumur fólks liggur aðallega í eina átt þessa helgi var ákveðið að bjóða sæti fyrir lítið á þeirri leið sem lítill straumur er. (meira…)
Ekki unnið við dýpkun í verstu vetrarmánuðunum

Ekki verður unnið við dýpkun Landeyjahafnar í janúar og febrúar í vetur og næsta vetur. Reynslan frá síðustu tveimur vetrum sýnir að svo mikill öldugangur er á þessum tíma að ekki þýðir að binda skip við verkefnið. (meira…)