Stefnir í 6 prósent fækkun farþega í innanlandsflugi vegna síaukinna álaga

Samtök ferðaþjónustunnar mótmæla harðlega gegndarlausum hækkunum gjalda á innanlandsflug. Frá fyrsta apríl á þessu ári hækka farþegagjöld á Reykjavíkurflugvelli um 40% og um þriðjungshækkun verður á lendingargjöldum. Þessi gjöld hækkuðu í apríl á síðasta ári yfir 70%. Strax í framhaldi af þessu hækkunum tók farþegum að fækka en þeim var farið að fjölga nokkuð eftir […]

Veistu hvað börnin þín eru að gera í tölvunni?

Tölvufíkn er vaxandi vandamál á ­Íslandi sem og heiminum öllum og sýna alþjóðlegar rann­sóknir að 4,6 – 4,7% unglinga eru með einkenni tölvufíknar, 6-15% af almenningi og 13-18,4% há­skólastúdenta. Umræða um hana er því þörf og ber að fagna. (meira…)

Skrýtin forgangsröðun að loka í Stórhöfða

Pálma Frey Óskarssyni, veður­athugunarmanni á Stórhöfða, var í síðustu viku sagt upp störfum. Pálmi Freyr er fjórði veður­at­hugunarmaðurinn í beinan karl­legg sem ­sinnir starfinu. 1910 byrjaði Jónatan Jónsson, langafi Pálma Freys, sem vitavörður og síðar veðurathugunarmaður en hann starfaði til ársins 1935. Sonur hans, Sigurður, tók við 1935 og starfaði til 1965, þegar faðir Pálma […]

Vímuefna­notkun ekki látin viðgangast

„Fyrir nokkrum vikum átti ég fund með hópi fólks sem var nóg boðið í því sem sneri að neyslu vímuefna hér í Eyjum. Uppistaðan í þessum hópi var fólk sem á börn á unglinsaldri. Rétt er að taka sérstaklega fram að það var einróma álit þeirra að vand­inn væri síst stærri hér í Eyjum en […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.