Í fyrsta skipti sem lýst er yfir hættustigi síðan í gosinu 1973

�?ak fauk af húsi við Smáragötu í Vestmannaeyjum í kvöld en engin meiðsl urðu á fólki. Lögreglan hefur lýst yfir hættustigi og víða er mjög slæmt ástand í bænum. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hefur víðar orðið tjón, þakplötur verið að fjúka og þakkassar losnað af húsum við Bröttugötu og Hrauntún. Einnig eru þakplötur að fjúka af […]

Hættustig í Vestmannaeyjum

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum hefur óskað eftir því að sett verði á hættustig fyrir Vestmannaeyjar og hefur Ríkislögreglustjóri orðið við því. Hættustig þýðir að öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúrvöldum þó ekki svo alvarlega að um neyðarástand sé að ræða. Nú er fárviðri í Vestmanneyjum og þök hafa losnað af nokkrum húsum í […]

�?ak fauk af íbúðar­húsi

Sam­kvæmt til­kynn­ingu frá Slysa­varn­ar­fé­lag­inu Lands­björgu sinna nú ríf­lega 500 manns frá björg­un­ar­sveit­um fé­lags­ins nú lok­un­um vega, óveðursút­köll­um eða eru í viðbragðsstöðu vegna veðurs­ins sem nú geng­ur yfir landið. �??Í Vest­manna­eyj­um fauk þak af íbúðar­húsi við Smára­götu og lenti í heilu lagi á lóð rétt hjá. Húsið er stór­skemmt og ekki talið ör­uggt fyr­ir björg­un­ar­menn að […]

Landsnet í viðbragðsstöðu

Aukinn viðbúnaður er í stjórnstöð Landsnets og viðgerðarflokkar eru í viðbragðsstöðu vegna ofsaveðurs eða fárviðris sem spáð er að gangi yfir landið síðdegis í dag og í kvöld. Vegna óveðursins má búast við að truflanir geti orðið í raforkuflutningskerfinu víða um land síðdegis og í kvöld. Einkum á það við um Suður- og Suðausturland og […]

Leikið á morgun

Leik ÍBV og Akureyrar sem fram átti að fara í dag hefur verið frestað vegna veðurs. Nýr leiktími hefur verið fundin og verður leikurinn spilaður á morgun klukkan 18:00. (meira…)

Vegna óveðurs er breyttur opnunartími á heilsugæslu HSU á Selfossi og í Vestmannaeyjum

Vegna afleitrar veðurspár og yfirvofandi óveðurs verður breyttur opnunartími á heilsugæslu HSU á Selfossi og í Vestmannaeyjum. Síðdegismóttaka heilsugæslulækna á HSU á Selfossi verður lokuð í dag. Bráðamóttaka HSU á Selfossi er opin og þar er tekið á móti bráðatilfellum. Heilsugæslan í Vestmannaeyjum er lokuð í dag eftir klukkan 14 en vaktþjónusta er óbreytt á […]

Tilkynning frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum

OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Nú lítur út fyrir það að veðurspáin gangi eftir og eigum við von á fárviðri hér í Eyjum síðari hluta dagsins í dag 7. desember. Búist er við vindhraða upp í 40 m/sek í hreinni austan átt og mun lægja undir miðnætti. Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur lýst yfir óvissustigi fyrir allt landið. �?að almannavarnastig þýðir að […]

Eyjamenn í viðbragðsstöðu vegna væntanlegs vonskuveðurs

�??Skíthræðsla er ekki til neins. Góður undirbúningur og skynsemi er langtum betri. Við vitum að þetta getur orðið slæmt og verðum að vera klár í að bregðast við,�?? segir Elliði Vignisson bæjarstjóri í Eyjum. �?etta eru viðbrögð Elliða við þeim yfirlýsingum blaðamanns að hann væri skíthræddur ef hann væri úti í Eyjum núna, vonskuveður er […]

�?tibúi Íslandsbanka lokað klukkan 13:00

�?tibúi Íslandsbanka verður lokað eftir hádegi í dag mánudaginn 7. desember vegna viðvarana Almannavarna �?jónustuverið er opið til 17:00 – sími 440 4000 Í �?jónustuverinu geta einstaklingar og fyrirtæki fengið alla almenna bankaþjónustu. (meira…)

Landsbankinn lokar klukkan 13:00

Vegna afleitrar veðurspár seinnipartinn, verður útibúi Landsbankans í Eyjum, lokað kl. 13 í dag. Hið sama má segja um útibúin á Hornafirði, Hvolsvelli, Reykholti, �?orlákshöfn, Selfossi, Grindavík og í Keflavík (Reykjanesbæ) segir í tilkynningu frá Landsbankanum. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.