KFUM og KFUK góð leið til að kynnast nýju fólki

Nú er norrænu móti KFUM og KFUK sem haldið var í Vestmannaeyjum dagana 13. -18. júlí lokið. Tæplega 140 unglingar og leiðtogar frá Ísland, Færeyjum, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi hafa að sögn Gísla Stefánssonar, æskulýðsfulltrúa Landakirkju og starfsmanns KFUM og KFUK á Íslandi, skemmt sér konunglega síðustu daga og fengið að njóta ríkulegrar náttúru Eyjanna […]
ÍBV bætir við sig miðverði

Karlalið ÍBV hefur samið við 24 ára gamlan miðvörð að nafni David Atkinson en hann er uppalinn hjá Middlesbrough og á að baki 16 leiki í Premier League Two og 32 leiki í League Two með Carlisle. David hefur síðan leikið með Blyth Spartans í National league north. (meira…)
Ragnar Sigurjónsson er Eyjamaður vikunnar: Allar dúfurnar skiluðu sér aftur í Brandshús

Sögusetur 1627 stóð fyrir dagskrá í Sagnheimum og Safnahúsi á sunnudaginn og minntist þess að 390 ár eru frá því að sjóræningjar réðust á land í Vestmannaeyjum, dagana 16. til 19. júlí 1627. Til minningar um þá 34 sem drepnir voru á Heimaey í ráninu sleppti Ragnar Sigurjónsson jafnmörgum dúfum sem skiluðu sér til síns […]
Bæjarstjórn – Tryggð verði fullnægjandi dýpkun sem allra fyrst

Á fundi sínum í gær ræddi bæjarstjórn samgöngur á sjó og dýpkun í Landeyjahöfn þar sem farið er að grynnka, sérstaklega við eystri hafnargarðinn. Samþykktar voru eftirfarandi ályktanir: Bæjarstjórn lýsir yfir miklum áhyggjum af stöðu mála í Landeyjahöfn vegna grynninga milli garða og gerir þá sjálfsögðu kröfu að allt verði gert til að tryggja fullnægjandi […]