Gott opnar í Reykjavík

�?au skemmti­legu tíðindi ber­ast að einn rómaðasti veit­ingastaður lands­ins, GOTT, muni senn opna í miðborg Reykja­vík­ur, nán­ar til­tekið á nýja Ice­land Air hót­el­inu í Hafn­ar­stræti. www.mbl.is greindi frá. Nú fá borgabúar og fleirri að njóta góða matarins sem þau gott-hjón­in Sig­urður Gísla­son og Berg­lind Sig­mars­dótt­ir bjóða uppá hér í Vestmannaeyjum. (meira…)

ÍBV vann með fjór­tán marka sigri

ÍBV sigraði Gróttu með fjór­tán marka mun í leik liðanna í Vestmannaeyjum í dag. ÍBV er þá komið með 24 stig í fjórða sæti deild­ar­inn­ar. Leik­ur­inn var aldrei spenn­andi og þá sér­stak­lega ekki eft­ir að Lovísa Thomp­son fékk rautt spjald. Lovísa hrinti á eft­ir Söndru Dís Sig­urðardótt­ur sem hugðist skora sitt fjórða mark á 12. […]

Strákarnir mæta Haukum – Stelpurnar mæta Fram

ÍBV og Fram mæt­ast í undanúr­slit­um í kvenna­flokki í Coca Cola bik­ar­keppn­inni í hand­knatt­leik. Strákarnir mæta Haukum í Laugardagshöll í mars. Dregið var á blaðamanna­fundi nú í há­deg­inu. Undanúr­slit­in fara fram í Laug­ar­dals­höll eins og úr­slita­leik­irn­ir. Undanúr­slit­in eru af­greidd á fimmtu­degi og föstu­degi, úr­slita­leik­irn­ir á laug­ar­deg­in­um og úr­slita­leik­ir yngri flokka á sunnu­deg­in­um. �?essi lið mæt­ast […]

Með óbreyttum kvóta verður áherslan lögð á hrognavinnslu

Skip Ísfélagsins, Álsey VE, Heimaey VE og Sigurður VE voru að gera klárt fyrir grunnnnótina og kíkja á loðnumiðin í þessari viku. Áður voru skipin búin að fá um 13.000 tonn og á Ísfélagið eftir um 23.000 tonn eftir þá litlu viðbót sem gefin var út á dögunum. Eitthvað verður fryst en miðað við óbreyttan […]

Breki VE í kínverskri þurrkví

Togararnir Breki VE og Páll Pálsson ÍS hafa verið teknir í þurrkví í skipasmíðastöðinni í Kína til að botnhreinsa þá og mála. �?etta er eitt af frágangsverkunum áður en skipin verða afhend eigendum sínum í aðdraganda siglingar til heimahafna á Íslandi. Reynslusiglingum og veiðarfæraprófunum á miðun úti fyrir Kínaströndum lauk á nýliðnu ári og nú […]

ÍBV komnir í undanúrslit

Karlalið ÍBV í hanbolta tryggði sér sæti í undanúr­slit­um Coca cola bik­ars karla í hand­bolta með 34:25-sigri gegn Gróttu í gærkvöldi. ÍBV var þar með síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í undanúr­slit­um í bik­ar­keppni karla í hand­knatt­leik. ÍBV mun þar af leiðandi leika til undanúr­slita í keppn­inni ásamt Fram, Hauk­um og Sel­fossi, […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.