Síðasti heimaleikurinn í dag

Meistaraflokkur kvenna ÍBV leikur sinn síðasta heimaleik í Pepsí-deild kvenna á þessu timabili í dag. HK/Víkingur kemur í heimsókn á Hásteinsvöllinn og hefst leikurinn kl 17:00. Stelpurnar eru nú í fimmta sæti deildarinnar og eru gestirnir í því sjöunda. (meira…)
Hvað er „kulnun í starfi“ og hvað er til ráða?

Kulnun í starfi getur orðið eftir langvarandi streitu og álag í vinnu sem er meira en venjuleg þreyta eða vinnustreita. Ástæður geta hugsanlega verið af völdum álags þegar aukins vinnuframlags er krafist af starfsmönnum vegna hagræðingar. Einnig getur verið um sjálfskaparvíti að ræða þegar starfsmenn taka að sér meiri vinnu í leit að starfsframa eða […]
Umhverfis- og auðlindastefna fyrir Suðurland

Nú er unnið að gerð Umhverfis- og auðlindastefnu fyrir Suðurland, sem er stjórntæki um nýtingu og verndunauðlinda svæðisins. Tilgangur hennar er að tryggja heilbrigð vistkerfi og að ekki verði farið fram úr þolmörkum Suðurlands. Haldnir voru sjö samráðsfundir og þar á meðal einn í Vestmannaeyjum í síðustu viku. Umhverfis- og auðlindastefnan nýtist í aðalskipulögum sveitarfélaganna og einnig mögulega fyrir svæðisskipulag […]
Þennan landsbyggðarskatt verður að lækka

Útgerðarfyrirtæki í Vestmannaeyjum greiddu á síðasta fiskveiðiári, sem lauk 1. september síðastliðinn, vel yfir einn milljarð króna í veiðigjöld sem var nærri tvöföldun frá árinu á undan. Það er íþyngjandi og treysta verður að ríkisstjórn og Alþingi standi við gefin fyrirheit um lækkun þessara gjalda, segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Eyjum í umfjöllun um mál […]
Guldu afhroð á Hlíðarenda

Eftir að hafa leitt 0-1 í hálfleik tóku Valsmenn öll völd í síðari hálfleik í leik liðanna í Pepsi-deild karla á Hlíðarenda í gær Sunnudag. Eyjamenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og pressuðu Valsmenn hátt í upphafi fyrri hálfleiks. Það bar árangur á 20. mínútu þegar Arli Arnarsson skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá […]