Bílvelta á Hamarsvegi

Fólksbíll valt á Hamarsvegi um klukkan fjögur í dag. Einn ökumaður var í bílnum og er allt útlit fyrir að hann hafi sloppið án teljandi meiðsla. Búið er að rétta bílinn við og er hann talsvert skemmdur. (meira…)

Bólusetning við mislingum að hefjast á Suðurlandi

Hluti af því bóluefni sem er að berast landsins kemur á heilsugæslur á Suðurlandi í dag og restin kemur á þriðjudag ef áætlanir ganga eftir. Byrjað verður að bólusetja í dag og haldið áfram eftir helgi, þessu er greint frá á vef HSU. Þeim sem verður boðin bólusetning til að byrja með eru óbólusett börn […]

Í fyrsta lagi klár eftir næstu helgi

Mikil umræða hefur er í gangi í Eyjum varðandi opnun Landeyjahafnar undanfarna daga sér í lagi þar sem dýpkunartölur virðast fljótt á litið vera siglingum í hag. „Unnið er eftir verkáætlun sem miðar að því að gera höfnina klára fyrir Herjólf eins fljótt og hægt er. Eins og staðan er núna á eftir að fjarlægja […]

Sinnuleysi Vegagerðar skerðir lífsgæði og atvinnutækifæri Vestmannaeyinga

Samgöngur eru án efa eitt allra stærsta hagsmunamál samfélagsins okkar. Á vörum allra bæjarbúa heyrast sömu spurningar þessa dagana, hvenær opnar höfnin? Enda ekki skrítið, Landeyjahöfn hefur verið stórkostlegt framfaraskref fyrir Vestmannaeyjar og tækifærin fyrir samfélagið hafa vaxið stórkostlega með tilkomu hennar. Um leið og Landeyjahöfn opnast eykst straumur ferðamanna margfalt og lífsgæði eyjaskeggja aukast […]

Rangæingar vilja fá að nýta Landeyjahöfn

„Við vilj­um hafa eitt­hvað um Land­eyja­höfn að segja og kanna aukna nýt­ing­ar­mögu­leika á henni sem leitt gætu til um­tals­verðrar at­vinnu­upp­bygg­ing­ar í Rangárþingi eystra,“ seg­ir Ant­on Kári Hall­dórs­son, sveit­ar­stjóri Rangárþings eystra en markaðs- og at­vinnu­mála­nefnd hef­ur lagt það til við sveit­ar­stjórn að hún beiti sér fyr­ir því. „Höfn­in er rík­is­höfn með enga hafn­ar­stjórn og Rangárþing eystra […]

Herjólfur tilbúinn og bíður afhendingar

Nýja Vest­manna­eyja­ferj­an Herjólf­ur er full­bú­in og til­bú­in til af­hend­ing­ar ytra. Pólska skipa­smíðastöðin hef­ur sent Vega­gerðinni til­kynn­ingu um það. Enn hef­ur ekki verið ákveðin dag­setn­ing fyr­ir af­hend­ingu. Björg­vin Ólafs­son, fram­kvæmda­stjóri BP Shipp­ing Agency Ltd. sem er umboðsaðili Crist skipa­smíðastöðvar­inn­ar í Gdynia, seg­ir að flokk­un­ar­fé­lag sé búið að taka út skipið. Full­trúi Sam­göngu­stofu sé vænt­an­leg­ur um helg­ina […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.