Ný slökkvistöð norðan við áhaldahús

Á fundi Framkvæmda- og hafnarráðs þann 5. september 2018 var ákveðið að skipa starfshóp til að skoða betur staðsetningar fyrir framtíðarhúsnæði Slökkvilið Vestmannaeyja. Á fundinum voru þeir Guðmundur Ásgeirsson, Guðlaugur Friðþórsson og Sigursveinn Þórðarson skipaðir í hópinn ásamt Ólafi Snorrasyni framkvæmdastjóra og Friðrik Páli Arnfinnssyni slökkviliðsstjóra. Auk þeirra hefur Sigurður Smári Benónýsson unnið með hópnum. […]
Guðlaugur Þór utanríkisráðherra á hádegisfundi í Ásgarði

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra verður gestur á fundi í Ásgarði í hádeginu á morgun fimmtudag kl.12:00. Þar mun hann fara yfir þau mál er snúa að hans ráðuneyti og er þar af nægu af taka. Súpa, brauð og kaffi verða í boði. Allir velkomnir Sjálfstæðisfélag Vestmannaeyja (meira…)
Clara slær landsleikjamet

Clara Sigurðardóttir mun í dag slá landsleikjamet þegar hún mun leika sinn 29.landsleik með yngri landsliðunum hjá U-16 og U-17. Clara hefur gert 7 mörk í þessum leikjum og átt stoðsendingar í mörgum mörkum. Clara er með landsliðinu á Ítalíu þar sem þær eru að leika í milliriðli EM og eiga góða möguleika að komast […]
Loðnubresturinn hefur áhrif á 280 heimili í Vestmannaeyjum

Í gær var haldinn fundur í Þekkingarsetri Vestmannaeyja sem bar yfirskriftina: Loðnubrestur, áhrif, afleiðingar og aðgerðir. Fundurinn var haldinn af Þekkingarsetri Vestmannaeyja, Vestmannaeyjabæ, SASS og Útvegsbændafélagi Vestmannaeyja. Eins og fram kom á fundinum í gær er bresturinn mikið fjárhagslegt högg fyrir samfélag eins og Vestmannaeyjar, fólkið sem þar býr, fyrirtækin og sveitarfélagið, sem eiga mikið […]
Guðný Jenný ekki meira með

Markvörður handknattleiksliðs ÍBV og íslenska landsliðsins, Guðný Jenny Ásmundsdóttir, er með slitið krossband í hné og leikur ekki meira á þessu ári. Þar með er ljóst að ÍBV-liðið verður án hennar á lokaspretti deildarkeppninnar og í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn en flest bendir til að ÍBV mæti Val í undanúrslitum. Einnig verður landsliðið án Jennyjar í […]
Félagsfundur ÍBV

Félagsfundur ÍBV íþróttafélags verður haldinn föstudaginn 29. mars. Fundurinn verður í Týsheimilinu, félagsheimili ÍBV kl. 12:00. Dagskrá: Kynntar verða fyrirhugaðar breytingar sem orðið hafa á framkvæmdum við búningsklefa félagsins. Aðalstjórn (meira…)
Veður truflar og oft landað

Veður hefur að undanförnu haft mikil áhrif á veiðar Vestmannaeyjaskipanna Vestmannaeyjar VE og Bergeyjar VE. Sannleikurinn er sá að þau hafa þurft að veiða í skjóli af Eyjunum og ekki komist á önnur mið vegna veðurs. Að sögn Arnars Richardssonar rekstrarstjóra eru skipstjórar skipanna enn ekki alveg sáttir við fiskiríið að undanförnu og telja að […]
Menn bara haga sér ekki svona

„Ég er nú búinn að vera í mörgum nýbyggingum, hef tekið þátt í að smíða 20-30 skip, en hef aldrei séð neitt þessu líkt. Þetta hlýtur að vera vankunnátta. Menn bara haga sér ekki svona,“ segir Björgvin Ólafsson, umboðsmaður skipasmíðastöðvarinnar Crist S.A. á Íslandi, við Morgunblaðið, en skipasmíðastöðin sér um smíði nýs Herjólfs í Póllandi. […]