Afraksturinn fer í að kaupa Augnbotnamyndavél

Söfnunarátakið Rauða fjöðrin sem Lions stendur fyrir um allt land fer fram um helgina. Krakkar munu banka uppá í hverju húsi í Vestmannaeyjum og safna, bæjarbúar eru hvattir til að taka vel á móti þeim. Afrakstri af sölu Rauðu fjaðrarinnar þetta árið verður varið til kaupa á „Augnbotnamyndavél OCT” (optical coherence tomography). Þetta er tæki […]

Landsbankinn hafnar rannsókn á eignatilfærslum tengdum Brimi

Aðalfundur Landsbankans hf. hafnaði í gær tillögu Seilar ehf., stærsta hluthafans í Vinnslustöðinni og hluthafa í bankanum, um að rannsakaðar yrðu tilfærslur eigna og eignarhluta Guðmundar Kristjánssonar í fjórum félögum, þar á meðal í Brimi og Vinnslustöðinni. Jóhann Pétursson hæstaréttarlögmaður flutti tillöguna fyrir hönd Seilar og hóf mál sitt á því að gera alvarlega athugasemd […]

Gestastofa Sea Life Trust opnar á morgun

Fyrsti griðastaður fyrir mjaldra verður að veruleika í Vestmannaeyjum eftir rúmar tvær vikur. Undirbúningur komu tveggja mjaldrasystra frá Kína er að ljúka en þeir koma með flugi hingað til lands þann 16. apríl. Árið 2016 spurðu forsvarsmenn Merlin Entertainment, næststærsta afþreyingarfyrirtækis heims, yfirvöld í Vestmannaeyjum hvort vilji væri til að taka á móti mjöldrum úr […]

Vinnustofur fyrir myndlistafólk, ljósmyndara og handverksfólk

Bæjarráði barst bréf frá Lista- og menningarhópi Vestmannaeyja dags. 28. mars sl., þar sem óskað er eftir því að fá til leigu hluta af húsnæði Vestmannaeyjabæjar að Strandvegi 30, efri hæð, undir vinnustofur. Lista- og menningarfélag Vestmannaeyja er nýstofnað og er hlutverk þess að efla lista- og menningarlíf í Eyjum og starfa sem einskonar regnhlífarsamtök […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.