FÍV var í öðru sæti í vali á stofnun ársins

Valið á Stofnun ársins 2019 var kynnt við hátíðlega athöfn á Hilton Nordica fyrr í dag en titlana Stofnun ársins og Fyrirmyndarstofnun hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr að mati starfsmanna. Valið er byggt á svörum rúmlega 10 þúsund starfsmanna í einni stærstu vinnumarkaðskönnun landsins. Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum var í öðru sæti í […]
Strákarnir spila við HK á morgun

HK og ÍBV áttu að mætast í fyrsta leik fjórðu umferðar úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, í Kórnum í kvöld en nú er ljóst að Eyjamenn komast ekki til leiks vegna veðurs. Leiknum hefur verið frestað um sólarhring og verður hann leikinn í Kórnum á morgun klukkan 18.45. (meira…)
Enskur framherji til ÍBV

ÍBV hefur fengið liðsstyrk frá Englandi í Pepsí Max deild kvenna í knattspyrnu en ÍBV hefur tapað tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum í deildinni. Um er að ræða enskan framherja, Anna Young, að nafni og er hún 24 ára gömul. Lék hún síðasta tímabil með Sunderland í ensku C-deildinni. Sunderland var áður atvinnumannalið en […]
Opið hús í Vigtarhúsinu

Laugardaginn 18. maí nk. milli kl. 12.30 og 14.00 verður opið hús í Vigtarhúsinu. Fulltrúi eiganda og fasteignasalar verða á svæðinu og sýndar verða íbúðir í húsinu fyrir áhugasama aðila. Búið er að selja tíu íbúðir af fimmtán og nýlega keypti Ribsafari jarðhæðina í húsinu. Allir eru velkomnir. Gengið er inn um aðaldyr að austanverðu. Nánari […]
Viðhaldsdagar Herjólfs framundan

Viðhaldsdagar Herjólfs verða 21 og 22 maí næstkomandi. Áætlun ferjunnar þessa daga verður sem hér segir: 21.maí 2019 Frá Vestmannaeyjum kl: 07:00, 09:30 og 12:00 Frá Landeyjahöfn kl: 08:15, 10:45 og 13:15 22.maí 2019 Frá Vestmannaeyjum kl: 17:00, 19:30 og 22:00 Frá Landeyjahöfn kl: 18:15, 20:45 og 23:15 (meira…)