Tugir bíla sátu fastir í nýja Herjólfi – sá gamli tekinn við

Bilun í glussakerfi á nýjum Herjólfi olli því að ekki var hægt að opna afturhlera skipsins nú fyrir stundu. Brugðið var til þess ráðs að snúa skipinu og hleypa bílunum út að framan. Ekki vildi hins vegar betur til en svo að hlerinn sem á að tengjast við landbrúnna náði ekki alla leið og því […]
Ný stjórn og ritstjóri, nýtt hlutafé og ný framtíð

Í gær var haldinn hluthafafundur í Eyjasýn ehf. sem á og rekur Eyjafréttir og Eyjafrettir.is. Á fundinum var samþykkt tillaga um að auka hlutafé í félaginu til að skapa svigrúm til að styrkja stoðir rekstursins. Á fundinum var samþykkt ný stjórn en formaður stjórnar er Margrét Rós Ingólfsdóttir félagsfræðingur. Aðrir í stjórn eru Atli Rúnar […]
Opinn kynningarfundur á Tækniþróunarsjóði í Þekkingarsetrinu

Í hádeginu á morgun, fimmtudaginn 22. ágúst, mun Rannís í samstarfi við Þekkingarsetur Vestmannaeyja halda kynningarfund á Tækniþróunarsjóði í Þekkingarsetri Vestmannaeyja, Ægisgötu 2. Fundurinn byrjar stundvíslega kl. 12 og verður lokið kl. 13. Fundurinn er öllum opin og verður boðið upp á létta hádegishressingu meðan á fundi stendur. Farið verður yfir möguleika varðandi opinberan stuðning […]
Bæjarráð hvetur ráðherra að tryggja skosku leiðina

Á fundi bæjarráðs í gær var meðal annars rædd staða flugsamganga til Vestmannaeyja í vetur en bæjarráð hefur áður lýst áhyggjum sínum af stöðunni. „Öflugt innanlandsflug er ein forsenda fyrir dreifðri byggð í landinu og nú er orðið ljóst að ekki er aðeins verið að fækka flugferðum til Vestmannaeyja heldur einnig annarra áfangastaða á landinu,” segir […]