IBV fær tvo nýja leikmenn í handboltann

ÍBV hefur tilkynnt að gengið hafi verið frá samningi við tvo nýja leikmenn fyrir kvennaliðið en það eru Darija Zecevic og Ksenija Dzaferovic en báðar koma þær frá Svartfjallalandi. Darija er 21 árs gamall markvörður sem var síðast á mála hjá Zurd Koper í Slóveníu. Ksenija er 19 ára gömul skytta og var síðast á mála hjá ŽRK Budućnost í Svartfjallalandi. ÍBV býður stelpurnar velkomnar til Eyja. (meira…)
Eyjasýn færir Ljósmyndasafni Vm. staðbundið sjónvarpsefni

Eyjasýn ehf. rak staðbundna sjónvarpsstöð í Eyjum frá 2001 – 2011 samhliða prentsmiðju, vikublaðinu Fréttir, -síðar Eyjafréttir og eyjafrettir.is eftir sameiningu Eyjaprents og Fjölsýnar árið 2001. Sjónvarpsstöð Eyjasýnar gerði ýmsa þætti tengda bæjarlífinu í Eyjum, má þar nefna fréttir, útsendingar af fundum bæjarstjórnar, útsendingar af fótbolta- og handboltaleikjum ÍBV , spurningakeppnir, mannlífsþætti, viðtöl við bæjarbúa ofl. Þegar saman kemur er þetta heilmikið […]
Fólk beðið um að draga úr rafmagnsnotkun í nótt

Í nótt, aðfaranótt föstudagsins 23. ágúst, fer fram vinna í dreifikerfi Landsnets á Hvolsvelli og í Rimakoti. Vegna þessa þarf að rjúfa rafmagn frá landi á bilinu 00:00 – 07:00. Þetta þarf þó ekki að þýða að rafmagnslaust verði í Eyjum því vélar HS Veitna verða notaðar til að framleiða rafmagn. Hugsanlega gæti þó komið […]