Svanur Páll semur við ÍBV

Svanur Páll Vilhjálmsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍBV. Svanur Páll er Eyjapeyi og leikur sem hægri hornamaður. Hann lék frá haustinu 2016 með Fram og Víkingi en kom síðan til ÍBV á láni um síðustu áramót og kláraði tímabilið í Eyjum. Nú hefur verið gengið frá endanlegum félagaskiptum hans aftur til ÍBV. “Við […]

Lundaballi 2020 frestað

Í ljósi nýjustu frétta af útbreiðslu Covid-19, tilmælum og takmörkunum yfirvalda og með almannahag í huga, höfum við Brandarar ákveðið að fresta Uppskeruhátíð bjargveiðimanna 2020 sem fyrirhugað var að halda 26. september næstkomandi. Okkur hlakkar til að sjá ykkur á besta Lundaballi allra tíma sem haldið verður laugardaginn 25. september 2021 og verður það auðvitað í höndum Brandara. Bestu […]

Ekkert smit í Eyjum síðan tólfta ágúst

Engin ný smit hafa greinst í Vestmannaeyjum síðan 12. ágúst síðastliðinn. Enn eru sex einstaklingar í einangrun og 28 í sóttkví. 49 hafa lokið sóttkví. Viðbrögð samfélagsins hafa verið gríðarlega góð allt frá því að veiran greindist hér eftir verslunarmannahelgi og tókst strax að hefta útbreiðslu hennar. Bæjarbúar hafa gætt vel að einstaklingsbundnum sóttvörnum auk […]

Stemming sem maður finnur hvergi annars staðar

Vestmannaeyjahlaupið fer fram í tíunda skiptið þann 5. september næstkomandi. Boðið verður upp á tvær vegalengdir að þessu sinni, fimm og tíu kílómetra en skráning fer fram á hlaup.is. Þeir eru þónokkrir sem hafa tekið þátt í öllum hlaupunum frá upphafi en frægastur þeirra er líklega langhlauparinn og ólympíufarinn Kári Steinn Karlsson. Kári Steinn á […]

Fjögurra ára og yngri fækkað um 66% í Eyjum frá 1998

Eftir að hafa náð 4933 íbúum með lögheimili í Vestmannaeyjum 1. janúar 1991, sem er það mesta eftir gos ( 1971 var 5231 íbúi ), fækkaði íbúum Eyjanna jafnt og þétt alveg til ársins 2008 og voru þá 4055. Síðan þá hefur þróunin snúist við og íbúum smá saman fjölgað og um síðustu áramót voru […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.