Talsvert af fíkniefnum fannst í bifreið

Í gær stöðvaði Lögreglan í Vestmannaeyjum för aðila sem grunaður er um fíkniefnamisferli en hann var að koma með Herjólfi til Eyja. Við leit í bifreið aðilans fann fíkniefnaleitarhundurinn Rökkvi talsvert magn af ætluðum fíkniefnum sem búið var að fela vandlega. Lögregla ætlar að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu í Vestmannaeyjum. Málið er í […]
Ásgeir Snær verður frá í 4 til 5 mánuði

Eins og Eyjafréttir greindu frá fyrr í vikunni varð Ásgeir Snær Vignisson, leikmaður meistaraflokks ÍBV í handbolta fyrir meiðslum í leik gegn Val á laugardaginn. Við skoðun á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum kom í ljós að hann hafði farið úr axlarlið. Hann fór til nánari skoðunar hjá sérfræðingi og kom þá í ljós að afleiðingarnar […]
Týndi Vestmannaeyjaþátturinn kominn í leitirnar – myndband

Í kringum eldgosið á Heimaey fór hópur tónlistarmanna og fólks frá Eyjum í myndver Ríkissjónvarpsins og tók um tvo þætti þar sem flutt var tónlist frá Eyjum. Árni Johnsen var umsjónarmaður þáttanna sem þóttu hinir skemmtilegustu. Fyrri þátturinn var endursýndur um 1980 og má finna á veraldarvefnum en sá síðar hefur ekki fundist fyrr en […]
Grútarmengun vegna yfirfulls báts

Grútarmengun kom upp í Vestmannaeyjahöfná miðvikudagsmorgun vegna yfirfulls báts sem flæddi úr. Aðgerðir við að hreinsa mengunina tóku um einn og hálfan tíma og er enga mengun þar að finna lengur, að sögn forstöðumanns hafnarinnar. „Það varð þarna óhapp, yfirfylltist hjá þeim báturinn. Þetta var að megninu til sápa en þetta var líka fiskilýsi,“ segir Sveinn […]