Opinn fundur Sjálfstæðisflokksins í Akóges í hádeginu á miðvikudag

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og Bjarni Benediktsson bjóða Eyjamönnum til opins fundar í Akóges kl. 12:00 miðvikudaginn 22. september. Farið verður yfir helstu áherslumál og fyrirspurnum svarað. Súpa og brauð frá Einsa Kalda Allir velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur   (meira…)

Vetrarvörn Vegagerðar

Það  vakti óneitanlega athygli hversu snögg  forstjóri Vegagerðarinnar var að stíga fram og grípa til varna fyrir stjórnendur Herjólfs og meirihluta bæjarstjórnar, vegna gagnrýni sem sett hefur verið fram á fækkun ferða með því að setja á vetraráætlun hjá Herjólfi 9 mánuði ársins. Það er reyndar alveg nýtt, og þar tala ég af reynslu, að […]

Ofsaveður í Vestmannaeyjum (myndir)

Ofsaveður gengur nú yfir Vestmannaeyjar vindhraði á Stórhöfða hefur farið í 57 m/s í hviðum. Arnór Arnórsson formaður Björgunarfélags Vestmannaeyja sagði í samtali við Eyjafréttir um hefðbundna haustlægð að ræða. “Við erum komin í rúmlega 20 útköll með 15 manns úti. Veðrið er að ganga niður núna veðrið. Í sumum tilfellum er ekkert hægt að […]

Þjóðhátíð fær ríkisstyrk

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að til standi að veita Þjóðhátíðar í Eyjum ríkisstyrk vegna tekjutaps ÍBV en hátíðinni hefur verið frestað nú í tvö ár. Þetta kemur fram í frétt á vefnum visir.is. Hugmyndir þess efnis voru ræddar á ríkisstjórnarfundi í morgun. „Við vorum að ræða það að við ættum eftir að koma með úrræði […]

Fjárfestum í ungu fólki!

Á undanförnum árum hafa málefni barna verið í forgrunni hjá Ásmundi Einari Daðasyni félagsmálaráðherra. Ásmundur hefur staðið fyrir einu mesta átaki í málefnum barna sem nokkru sinni hefur verið framkvæmt með það fyrir augum að öll börn njóti sömu réttinda til opinberrar þjónustu. Að því leyti voru samþykkt ný lög um samþættingu þjónustu í þágu […]

Hugsum eftirlaunin upp á nýtt með Vilhjálmi Egils

Sjálfstæðisflokkurinn býður áhugsasömum til fundar í Akóges í kvöld þriðjudag 21. september kl. 20:00. Þar mun Vilhjálmur Egilsson hitta okkur í gegnum fjarfundarbúnað, fara yfir tillögur Sjálstæðisflokksins að breytingum á lífeyriskerfinu og svara fyrirspurnum. Heitt á könnunni og sætir bitar. Allir velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur (meira…)

Viðvaranir um allt land

Appel­sínu­gul veður­við­vörun verður í gildi í dag á höfuð­borgar­svæðinu, Suður­landi, Faxa­flóa, Vest­fjörðum, Aust­fjörðum, Suð­austur­landi og Mið­há­lendinu. Gul veður­við­vörun verður í gildi á Ströndum, Norður­landi vestra, Norður­landi eystra og Austur­landi að Glettingi. Meðal vindhraði fór í 30 m/s á Stórhöfða klukkan sjö í morgunn og 42 m/s í hviðum. Herjólfur fór fyrri ferð sína í morgunn […]

Ráðherrar og þingmenn þurfa að beita sér

Ákvörðun Icelandair að hætta öllu áætlunarflugi til Vestmannaeyja frá og með 31. ágúst sl var til umræðu á fundi bæjarstjórnar í liðinni viku. Sú ákvörðun var mikil vonbrigði, sérstaklega í ljósi þess að félagið hafði áður gefið út að flogið yrði á markaðslegum forsendum út september. Í kjölfarið óskaði bæjarstjóri f.h. bæjarráðs eftir fundi með […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.