Lúðrasveitartónleikar í Hvítasunnukirkjunni á laugardag

Árlegir tónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja fara fram í Hvítasunnukirkjunni við Vestmannabraut næstkomandi laugardag 6.nóvember kl.16:00 og eru þeir hluti af metnaðarfullri dagskrá Safnahelgar. Tónleikarnir eru öllum opnir og er aðgangseyrir 2500 kr. Félagar í styrktarfélagi Lúðrasveitarinnar fá að venju frítt inn. Lúðrasveitin var stofnuð 1939 af Oddgeiri Kristjánssyni og félögum. Sveitin hefur starfað óslitið síðan, sem […]
Jól í skókassa lýkur á föstudag í Eyjum

Verkefninu Jól í skókassa lýkur í Vestmannaeyjum á föstudaginn nk. 5. nóvember. Kössum er skilað í Landakirkju en þar er opið öllu jafna milli 9 og 15. Einnig má skila kössum á Eimskip Flytjanda við Friðarhöfn á opnunartíma. Á slóðinni kfum.is/skokassar má sjá frekari upplýsingar og leiðbeiningar sem tengjast verkefninu. (meira…)
Verkfallsboðun sjómanna gæti tengst loðnuvertíð

Kjaramálin mun væntanlega bera hæst, sem og öryggismál, á þingi Sjómannasambands Íslands sem haldið verður á fimmtudag og föstudag. Kjarasamningar sjómanna við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa nú verið lausir í tæplega tvö ár. Valmundur Valmundsson, formaður SSÍ, segir í samtali við mbl.is að lítið sé að gerast í kjaraviðræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi […]
Áætluð tekjujöfnunarframlög fyrir árið 2021

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur samþykkt tillögu ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um áætlaða úthlutun tekjujöfnunarframlaga ársins 2021. Að teknu tilliti til ráðstöfunarfjármagns sjóðsins nemur áætluð heildarfjárhæð framlaganna 1.400 m.kr. sem er hækkun um 150 m.kr. frá árinu 2020. Við útreikning framlaganna er gengið út frá hámarkstekjumöguleikum sveitarfélaga af útsvari og fasteignaskatti. Einungis kemur til greiðslu […]