Jólafundur Aglow í kvöld

Jólafundur AGLOW verður í kvöld 1. desember í safnaðarheimili Landakirkju kl. 20.00. Í tilkynningu frá Aglow kemur fram að á dagskrá er söngur, jólasöngvar og jólasaga, veitingar og ræðumaður kvöldsins verður. Tryggvi Hjaltason. Allir eru velkomnir, konur og karlar. (meira…)

Safnahúsið styttir biðina eftir jólunum

Starfsfólkið í Safnahúsinu ætlar að sjá til þess að engum leiðist í desember en þau ætla að bjóða upp á ein 3 jóladagatöl. Nánari lýsingu á þeim upplýsingar um það hvar þau má finna má sjá hér að neðan. Jóladagatal Listasafns Vestmannaeyja í boði Listvina. Listasafn Vestmannaeyja telur um 900 listaverk eftir um 100 listamenn. […]

1. desember – Kristín Halldórsdóttir | Að lifa í trú

Starfsfólk Landakirkju mun í ár halda úti jóladagatali líkt og gert var fyrir jólin 2018 og 2019. Jóladagatal Landakirkju 2021 sem ber yfirskriftina Að lifa í trú. Birtur verður einn gluggi á Facebook-síðu Landakirkju og á Youtube-rás kirkjunnar hvern morgun alveg fram að jólum. (meira…)

Ísfélag Vestmannaeyja 120 ára

Ísfélag Vestmannaeyja hf. var stofnað 1. desem­ber 1901 og fagnar 120 ára afmæli í dag. Félagið er elsta starfandi hlutafélag landsins. Í tilefni afmælisins verður gefið út veglegt rit sem dreift verður í öll hús og fyrirtæki næstu daga, bæði hér í Eyjum og á Þórshöfn. Ritið er 140 síður og fjallar um sögu félagsins […]

Óbreytt Goslokanefnd

Bæjarráð skipar þau Ernu Georgsdóttur, Grétar Þór Eyþórsson, Sigurhönnu Friðþórsdóttur og Þórarinn Ólason í Goslokanefnd fyrir árið 2022. Með nefndinni starfa Jóhann Jónsson, forstöðumaður Þjónustumiðstöðvar og Þórhildur Örlygsdóttir, sérfræðingur á stjórnsýslu- og fjármálasviði. Um er að ræða sömu einstaklinga og skipuðu Goslokanefnd fyrir árin 2020 og 2021. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.