Skipstjóri á Herjólfi sigldi eftir að réttindi runnu út

Skipstjóri hjá Herjólfi hefur fengið áminningu í starfi og verið lækkaður í tign, eftir að athugasemd og kvörtun barst um óeðlileg vinnubrögð af hans hálfu. Þetta staðfestir Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf. við fréttastofu RÚV. Lögskráningu skipsins var ábótavant, þar sem skipstjórinn hélt áfram að sigla eftir að atvinnuréttindi hans runnu út fyrir jól. […]

Sýnatökur á morgun við HSU

Ákveðið hefur verið að bjóða upp á sýnatökur á morgun laugardag kl 9:30  fyrir þá sem eru að losna úr sóttkví og þá sem finna fyrir einkennum – PCR próf. Þeir sem hafa fengið strikamerki og eru að ljúka sóttkví geta mætt en öðrum sem eru með einkenni og ætla mæta er bent á að skrá […]

Minningarstund í Landakirkju á sunnudagskvöld

Í ljósi samkomutakmarkana mun goslokanefnd standa fyrir minningarstund í Landakirkju þann 23. janúar næstkomandi, rétt eins og í fyrra.  Dagskráin verður með svipuðu sniði, þ.e. fluttar verða hugvekjur og eyjalög sungin og spiluð.  Minningarstundin hefst kl. 20:00 á sunnudagskvöld og verður hægt að nálgast hlekk á hana á vef Vestmannaeyjabæjar, samfélagsmiðlum bæjarins og á eyjamiðlunum.  […]

Sjúkraflug undir fordæmalausu álagi

Staðan á HSU í Vestmannaeyjum var til umræðu á fundi bæjarráðs í gær. Davíð Egilsson, yfirlæknir heilsugæslunnar í Vestmannaeyjum, kom á fund bæjarráðs og fór yfir stöðu læknamönnunar á Heilsugæslunni í Vestmannaeyjum. Bæjarstjóri hefur, f.h. Vestmannaeyjabæjar, óskað eftir fundi með nýju heilbrigðisráðherra, til þess að ræða stöðu og starfsemi HSU í Vestmannaeyjum, stöðu sjúkraflugs og […]

Slakar flugsamgöngur og illa búið dýpkunarskip

Umræða um samgöngumál fór fram á fundi bæjarráðs í gær en þar kom fram að flugfélagið Ernir hóf áætlanaflug til og frá Vestmannaeyjum þann 23. desember sl., að undangenginni verðkönnun samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins. Flugið er starfrækt með sérstöku framlagi frá samgönguráðuneytinu vegna Covid. Dýpi í Landeyjahöfn hefur versnað og verður dýpkað þegar aðstæður leyfa. Bæjarstjóri […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.