Framboðslisti Sjálfstæðismanna borinn upp til samþykktar

Boðað er til fundar í Fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum mánudaginn 4.apríl kl.18:00 Fundurinn fer fram í Ásgarði félagsheimili sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Borinn verður upp til samþykktar framboðslisti Sjálfstæðismanna vegna sveitarstjórnarkosninga í Vestmannaeyjum 2022 Rétt til fundarsetu hafa aðal og varafulltrúar í Fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum. Stjórn Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum. (meira…)

Vestmannaeyjabær er áfram í fyrsta sæti þegar kemur að þjónustu við barnafjölskyldur og fatlaða

Niðurstöður könnunar Gallup á þjónustu sveitarfélaga fyrir árið 2021 voru kynntar á íbúafundi mánudaginn 21. mars 2022. Eru niðurstöður könnunarinnar jákvæðar varðandi þjónustu Vestmannaeyjabæjar. Vestmannaeyjabær er efst þeirra 20 stærstu sveitarfélaga landsins þegar spurt er um þjónustu við barnafjölskyldur og fatlaða. Bæjarfélagið er í öðru til þriðja sæti þegar kemur að, þjónustu leikskóla og menningarmálum. […]

Mikilvægt að standa vel að komu fólks

Á fundi sínum þann 16. mars sl., tók bæjarráð Vestmannaeyja fyrir málefni flóttafólks frá Úkraínu. Málið var til umræðu á fundi bæjarstjórna í vikunni sem leið. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur verið að þróa samræmda móttöku flóttafólks í samstarfi við fimm sveitarfélög og er unnið að því að festa móttökukerfið í sessi. Að verkefninu koma auk […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.