Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 

Karlalið ÍBV hefur leik í Bestu deildinni 12. apríl þegar liðið tekur á móti FH á  Hásteinsvelli. Aleksandar Linta var ráðinn þjálfari Eyjamanna fyrr á þessu ári. Linta er fimmtugur og kemur frá Serbíu. Hann bjó hér á landi í 15 ár en hann kom fyrst til Íslands árið 1997 til að spila með ÍA. Hann spilaði síðar með Skallagrími, Víkingi Ólafsvík, KA, Þór og Grundarfirði þar sem hann hóf sinn þjálfaraferil. Linta hefur undanfarin ár þjálfað í Serbíu og þjálfaði til að mynda u-19 ára landslið Serbíu. Hann var síðast á mála hjá unglingaliðum Rauðu Stjörnunnar ásamt því að hafa þjálfað FK Vozdoac, Olimpija Ljubljana og fleiri lið. Við fengum að spyrja Linta nokkurra spurninga um undirbúningstímabilið, leikmannahópinn, komandi tímabil og fleira. Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið og hvað hefur þú helst verið að leggja áherslu á?   Ég er mjög ánægður með undirbúningstímabilið og með leikmennina, hversu mikið þeir leggja á sig á æfingum og auðvitað með teymið sem vinnur með mér. Hugmyndin er að kynna leikmennina fyrir hugmyndafræðinni og færa þá nær kröfum leiksins. Búa til hollt umhverfi til að starfa í og góða stemningu í leiðinni.   Hafa orðið einhverjar breytingar á leikmannahópnum miðað við á síðasta tímabil? Býstu við frekari liðstyrk?   Nokkrir lykilleikmenn hafa auðvitað yfirgefið klúbbinn en á sama tíma hafa ungir og efnilegir leikmenn komið til okkar. Stjórnin er að vinna í því að fá leikmenn inn í þær stöður okkur vantar helst í. Ég vona að þeir komi eins fljótt og hægt er.  Eru einhverjir ungir leikmenn sem gera tilkall til byrjunarliðsins eða verður vert að fylgjast með í sumar?   Ég vona að við verðum allir þess virði að fylgjast með sem lið í sumar og það verður skemmtilegt og áhugavert að sjá alla þessa ungu leikmenn líka.   […]

Ágúst Gísli kom, sá og sigraði

Ágúst Gísli Helgason kom, sá og sigraði þegar úrslitakvöld Vöruhúsdeildarinnar fór fram síðastliðinn laugardag. Hann lagði Guðmund Tómas Sigfússon af velli í undanúrslitum í æsispennandi viðureign sem endaði 6-5. Það er óhætt að segja að leikurinn hafi verið sveiflukenndur en Ágúst vann fyrstu fimm leggina og allt stefndi í sannfærandi 6-0 sigur. Gummi náði hinsvegar […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.