Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Ágúst Gísli Helgason er deildarmeistari PFV 2026. Ljósmyndir/aðsendar.

Ágúst Gísli Helgason kom, sá og sigraði þegar úrslitakvöld Vöruhúsdeildarinnar fór fram síðastliðinn laugardag. Hann lagði Guðmund Tómas Sigfússon af velli í undanúrslitum í æsispennandi viðureign sem endaði 6-5. Það er óhætt að segja að leikurinn hafi verið sveiflukenndur en Ágúst vann fyrstu fimm leggina og allt stefndi í sannfærandi 6-0 sigur. Gummi náði hinsvegar að standast áhlaupið og vann næstu fimm leggi og knúði fram oddalegg. Ágúst vann þann legg og tryggði sig þar með inn í úrslitaeinvígið.

Þar mætti hann Bjarna Heimi Kristinssyni sem hafði betur gegn Sindra Orrasyni, 6-4, í hinum undanúrslitaleiknum. Sá leikur var líka jafn en augljóst var að hvorugur leikmaður náði að sína sitt rétta andlit. Tæknin stríddi mótshöldurum mikið í leiknum og hafði áhrif á spilarana. Sem betur fer var hægt að finna rót vandans og skera hana lausa.

Í úrslitaleiknum sjálfum vann Ágúst sannfærandi 7-2 sigur og var í kjölfarið krýndur meistari og fékk glæsilegan bikar að launum við mikinn fögnuð áhorfenda.

Það vantaði ekkert uppá mætinguna en sú staðreynd gladdi hjörtu þeirra sjálfboðaliða sem stóðu að keppninni. Að sama skapi var ánægjulegt að fylgjast með áhorfstölunum á YouTube streyminu sem sent var út í beinni útsendingu og svalaði þorsta þeirra sem ekki sáu sér fært að mæta. Það varð mótshöldurum ljóst að svona viðburður getur vel þrifist í ríkri menningarflóru eyjarinnar.

Veitt voru verðlaun fyrir eftirfarandi flokka:

1. sætið: Ágúst Gísli Helgason
2. sætið: Bjarni Heimir Kristinsson
3.-4. sætið: Guðmundur Tómas Sigfússon og Sindri Orrason
Flest 180 í deildinni: Sindri Orrason (13)
Hæsta útskot í deildinni: Aron Ingi Sindrason (147)
Besti leggur í deildinni: Atli R. Meldal Hreinsson, Garðar B. Sigurjónsson & Sigurður Guðnason (15)
Hæsta skor í partýpílunni: Sigurður Guðnason (180)

Mótanefnd PFV vill þakka Vöruhúsinu og Höllinni fyrir samstarfið og þeim Hödda, Kristjáni Loga, Tóta, Jökli Andra og allra hinna sem lögðu lóð sín á vogarskálarnar í undirbúningi þessa viðburðar.

Myndasyrpu frá kvöldinu má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.