ÍBV-konur í undanúrslit Bikarkeppninnar
ÍBV varð í gærkvöldi fjórða liðið til að öðlast sæti í undanúrslitum Powerade-bikarsins í handknattleik kvenna. ÍBV vann Stjörnuna með eins marks mun, 23:22, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 12:7. Frá þessu er sagt á handbolti.is Undanúrslitin eru miðvikudaginn 15. mars í Laugardalshöllinni. Auk ÍBV eiga Haukar, Selfoss og Valur sæti […]
Sigurður Grétar framlengir

Eyjamaðurinn Sigurður Grétar Benónýsson hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild ÍBV út knattspyrnutímabilið 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Sigurður er 26 ára gamall sóknarmaður sem hefur verið leikmaður ÍBV alla ævi hérlendis ef fráskilið er tímabilið 2020 þar sem Siggi lék með Vestra. Hann hefur skorað 8 mörk í 45 KSÍ leikjum […]
Föstudagsfróðleikur um bilaða Eyjastrengi
Landsnet heldur uppteknum hætti og sendir okkur fróðleiksmola á föstudegi um Vestmannaeyjastrengi. Við gefum Magna Þór Pálssyni orðið. (meira…)
Flutningskostnaður hækkað um 132% frá ársbyrjun 2019

Umræða um samgöngumál fór fram á fundi bæjarráðs í vikunni. Þar sem bæjarráð tók fyrir bréf Fiskfraktar ehf. sem sent var ráðinu og stjórn Herjólfs ohf. Í bréfinu er óskað eftir að stjórn Herjólfs endurskoði stefnu sína um verðhækkanir og afnám afsláttarkjara til handa flutningsfyrirtækjum. Fram koma í bréfinu áhyggjur félagsins af hækkunum ferða hjá […]
Þriggja ára deilu lauk með samningi til tíu ára

„Kátt er á hjalla og vöfflulyktin angar í Karphúsinu í kvöld þar sem forsvarsmenn Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) eru að skrifa undir nýja kjarasamninga. Samningar þessir eiga að gilda til tíu ára,“ segir í frétt á visir.is rétt í þessu. Kolbeinn Agnarsson, formaður Sjómannafélagsins Jötuns í Vestmannaeyjum var í dag bjartsýnn á […]
„Hrognin eru að koma, gerið kerin klár“

Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru markaðsráðandi á heimsvísu í framleiðslu loðnuhrogna. Ætla má að 80–100% heimsframleiðslunnar á hverju ári sé í sjávarþorpum Íslands. Loðnuhrogn eru nýtt á margvíslegan hátt en yfirleitt eru þau hrá við neyslu. Hreinlæti og ferskleiki skipta því afar miklu máli við framleiðsluna. En erfiðast af öllu er að hrognavertíðin stendur einungis í 10–20 […]
Ný deild á Sóla tilbúin um mánaðarmótin

Staða inntökumála í leikskóla var til umræðu á fundi fræðsluráðs í gær. Gert er ráð fyrir að börn fædd 2021, sem óskuðu eingöngu eftir leikskólavist á Sóla, verði komin í leikskóla um mánaðamótin febrúar-mars þegar ný deild á Sóla verður tilbúin. Nokkur börn í árgangi 2022 hafa hafið skólagöngu í Kirkjugerði. Sóli hefur svigrúm til […]
Haftyrðlar í vanda staddir
Upp á síðkastið hafa borist tilkynningar til Náttúrufræðistofnunar Íslands um haftyrðla í vanda. Er þá um að ræða fugla sem hafa hrakist upp á land í óveðrum og strandað þar en haftyrðlar eru ófærir um að hefja sig til flugs af landi. Á vef Náttúrufræðistofnunar er tekið fram að ef ekki sér á fuglunum er […]
Erlingur hættir eftir tímabilið

Erlingur Richardsson mun láta af störfum sem þjálfari karlaliðs ÍBV í handbolta eftir yfirstandandi tímabil. Þetta staðfesti Vilmar Þór Bjarnason framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍBV í samtali við Eyjafréttir rétt í þessu. Hann staðfesti að leit stæði nú yfir af eftirmanni Erlings. Erlingur hefur þjálfað liðið frá árinu 2018 þegar hann tók við þjálfun þessi í þriðja […]
Fimm sækja um stöðu lögreglustjóra

„Fimm hafa sótt um embætti lögreglustjóra í Vestmannaeyjum sem dómsmálaráðuneytið auglýsti laust til umsóknar nýverið,“ segir á mbl.is. Staðan losnaði þegar Grímur Hergeirsson, fráfarandi lögreglustjóri tók við sem lögreglustjóri á Suðurlandi. Umsækjendur eru: Arndís Bára Ingimarsdóttir, aðstoðarsaksóknari Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir, aðstoðarsaksóknari Karl Gauti Hjaltason, lögmaður Kristmundur Stefán Einarsson, aðstoðarsaksóknari Sigurður Hólmar Kristjánsson, aðstoðarsaksóknari Dómsmálaráðherra skipar […]