Fyrsta brotið úr Þjóðhátíðarmyndinni – Fólkið í Dalnum

Heimildarmyndin Fólkið í Dalnum er nú í eftirvinnslu og verður frumsýnd á næstu vikum í kvikmyndahúsum í Vestmannaeyjum og Reykjavík. Þetta fyrsta brot úr myndinni sem birt er opinberlega er úr kafla um setningu Þjóðhátíðar Vestmannaeyja sem er Eyjamönnum kær hátíðarstund. Fólkið í Dalnum er mynd eftir Sighvat Jónsson og Skapta Örn Ólafsson og verður […]

Frítt á völlinn í dag

Í dag tekur ÍBV á móti Stjörnunni á Hásteinsvelli klukkan 16:00. Strákarnir okkar eru á botninum í Pepsi-max deildinni og þurfa á stuðning okkar að halda. Frítt er á völlinn í boði velunnara og einnig verður grill og fjör fyrir leikinn. Áfram ÍBV! (meira…)

Mak­ríl­kvóti ís­lenskra skipa verður 140 þúsund tonn í ár

Íslend­ing­ar taka sér stærri hlut af mak­rílafl­an­um í Norður-Atlants­hafi en þeir hafa áður gert. Mak­ríl­kvóti ís­lenskra skipa verður 140 þúsund tonn í ár, sam­kvæmt reglu­gerð sjáv­ar­út­vegs­ráðherra. Er það rúm­lega 32 þúsund lest­um meira en fyrri viðmiðun­ar­regl­ur hefðu gefið, segir í frétt hjá mbl.is Íslend­ing­um hef­ur ekki verið hleypt að samn­inga­borði strand­ríkja­hóps mak­ríls þrátt fyr­ir marg­ar […]

Enn tekist á um skipun nýrrar stjórnar Herjólfs ohf.

Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gær var enn á ný tekist á um skipun nýrrar stjórnar Herjólfs ohf, sem skipuð var á aðalfundi félagsins í lok maí. Á fundinum lagði minnihlutinn fram tvær bókanir. Í fyrri bókun segir að bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsi yfir miklum vonbrigðum með að fyrst nú sé verið að ræða málefni aðalfundar bæjarstjórnar […]

Heilsuefling fyrir 65 ára og eldri í Vestmannaeyjum

Í dag undirrituðu Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja og Dr. Janus Guðlaugsson íþrótta-og heilsufræðingur samstarfssamning um heilsueflingar-og rannsóknarverkefnið „Fjölþætt heilsuefling 65+ í Vestmannaeyjum – Heilsuefling eldri aldurshópa“ Fyrirmynd af verkefninu er doktorsverkefni dr. Janusar Guðlaugssonar íþrótta-og heilsufræðings.  Í verkefninu var sýnt fram á að með markvissri þátttöku í fyrirbyggjandi heilsueflingu eldri aldurshópa má bæta hreyfigetu 70-90 ára […]

Tvöfalt fleiri konur mæta í skimun þegar hún er ókeypis

Fjöldi 23ja ára kvenna sem koma í fyrsta sinn í leghálsskimun og 40 ára kvenna sem koma í brjóstaskimun í fyrsta sinn hefur rúmlega tvöfaldast með nýju tilraunaverkefni Krabbameinsfélagsins sem býður konunum skimunina sér að kostnaðarlausu í ár. Stærstur hluti kvennanna segir að gjaldfrjáls skimun hafi hvatt þær til að taka þátt. Fyrstu fimm mánuði […]

Matartími hjá systrunum

Núna er vika síðan Litla hvít og Litla grá komu til Íslands. Eftir 19 klukkutíma ferðalag komust þær alla leið til Vestmannaeyja. Það tók síðan talsverðan tíma að koma þeim ofan í sérútbúnu landlaugina. Í heildina litið gekk ferðalag systrana mjög vel. Þær voru mjög þreyttar eftir ferðalagið eins og gefur að skilja en dafna […]

Í nógu að snúast hjá Magna á Þjóðhátíðinni

Það verður nóg að gera hjá Magna Ásgeirssyni þessa Þjóðhátíðina því hann kemur fram með ÁMS, Aldamótatónleikunum og nú er staðfest að Killer Queen koma fram sömuleiðis. Strákarnir í FM95Blö tilkynntu sig á Þjóðhátíð sl. föstudag í beinni útsendingu en einnig verða leynigestir með í því atriði eins og undanfarin ár og einnig staðfestir Þjóðhátíðarnefnd […]

Þátturinn tekinn upp í Vestmannaeyjum

„Ég hugsa til síðastliðins sum­ars með tals­verðum söknuði þegar ég sest niður í hæg­inda­stól­inn minn og skrifa nokk­ur orð um lokaþátt okk­ar í þáttaröðinni Lambið og miðin og ég held að ég eigi aldrei eft­ir að gleyma þeim dög­um sem fóru í tök­ur á þess­ari þáttaröð, segir læknirinn í eldhúsinu í pistli um síðasta þátt […]

Kristófer Tjörvi valinn í unglingalandslið Íslands í golfi

Greg­or Brodie, af­reks­stjóri Golf­sam­bands Íslands, og Ólaf­ur Björn Lofts­son, aðstoðara­freks­stjóri, hafa til­kynnt hvaða leik­menn skipa landslið Íslands sem tek­ur þátt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í liðakeppni sem fram fer í Svíþjóð, á Ítal­íu, í Frakklandi og á Spáni í júlí. Alls völdu þeir leik­menn í fjög­ur landslið sem taka þátt fyr­ir Íslands hönd á EM en öll […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.