Jóna Sólveig Elínardóttir: Kjósum varanlega velferð

Okkur ber skylda til að fjárfesta í grundvallarstofnunum samfélagsins af skynsemi og til framtíðar. �?að er á hinn bóginn dýrt að taka velferðina að láni eins og vinstri lántökuflokkarnir boða. Að ráðast í hundruða milljarða króna útgjaldaaukningu í áhættustórsókn mun auk þess enda með stórtapi fyrir allan almenning í landinu. Allt mælir gegn því að […]

Ragnar �?skarsson: Í von um góðan vetur

Á morgun fáum við að kjósa. Tvær síðustu ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins og fylgiflokka þeirra hafa hrökklast frá völdum vegna óeiningar en ekki síður vegna hneykslismála. Á síðust árum hefur enn og aftur og betur og betur komið í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn gætir sannarlega einkahagsmuna í stað hagsmuna almennings. Auk þess eru forystumenn flokksins flæktir í alls […]

Oddný G. Harðardóttir og Arna Huld Sigurðardóttir: Kjósum Samfylkinguna

�?að eru kosningar á laugardaginn og það eru margir flokkar í boði. Við sem skrifum þessa grein mælum með því að þú kæri lesandi kjósir Samfylkinguna. �?að eru margar ástæður fyrir því. Fyrst og fremst er ástæðan sú að Samfylkingin er jafnaðarmannaflokkur Íslands og berst fyrir jafnaðarstefnunni alla daga allan ársins hring. Við erum ekki […]

Páll Magnússon: Kosið um festu og stöðugleika

�?að er ekki nema ár síðan við stóðum í nákvæmlega sömu sporum og nú: Alþingiskosningar framundan. Er þetta ekki allt í lagi – er bara ekki í góðu lagi að kjósa einu sinni á ári? Nei, það er ekki í lagi! �?essi óstöðugleiki í stjórnmálunum; þetta eilífa rót og tætingur er stærsta ógnin við þann […]

Hildur Sólveig: Nýtum kosningaréttinn

�?stöðugleiki er óæskilegur Á morgun laugardaginn 28. október ganga Íslendingar til kosninga. �?ær báru að mun fyrr en áætlað var og er það að mörgu leyti miður, fyrst og fremst fyrir þann stjórnarfarslega stöðugleika sem nauðsynlegur er þessu framsækna og brautryðjandi landi sem Ísland sannarlega er. Slíkur óstöðugleiki skapar óvissu og neikvæð viðhorf m.a. fyrir […]

Sigurður Ingi Jóhansson: Vinna – vöxtur – velferð

Vinna Atvinna er undirstaða vaxtar og velferðar og gegna lítil og meðalstór fyrirtæki þar lykilhlutverki. Hlutverk ríkisins er fyrst og fremst að skapa hagstæða umgjörð um atvinnulífið, meðal annars með einföldun skattkerfis og regluverks atvinnurekstrar. Koma þarf í veg fyrir að fyrirtæki búi við íþyngjandi kröfur sem ekki þjóna tilgangi sínum. Mikilvægt er að gefa […]

Frambjóðendur á ferð í Vestmannaeyjum

�?að fer ekki framhjá neinum þessa dagana að kosningar eru framundan, óvenjulegar eru þær, en engu að síður eru þrír dagar í herlegheitin. Flokkarnir sem bjóða sig fram í Suðurkjördæmi eru tíu talsins. Fulltrúar frá Framsókn, Sjálfstæðisflokknum og Vinstri grænum kíktu til Vestmannaeyja í liðinni viku. Flokkarnir héldu opna fundi og vildu hlusta og ræða […]

Ragnhildur L. Guðmundsdóttir: Samgöngur og heilbrigðismál

CREATOR: gd-jpeg v1.0 (using IJG JPEG v62), quality = 80

Við viljum tryggja öruggar samgöngur fyrir alla. Með uppbyggingu samgangna viljum við tryggja öryggi íbúa landsins, mörg sveitarfélög búa við óásættanlegar samgöngur þar sem ófært er löngum stundum. Við viljum bæta vegi og göng þar sem því er ábótavant til að tryggja samgönguflæði allan ársins hring. Mikilvægt er að styðja við samgöngur á vegum, sjó […]

Einfaldleiki og besta mögulega hráefnið

Eyjamaðurinn og bakarinn Birgir �?ór Sigurjónsson, sonur Sigurjóns Birgissonar og Mjallar Kristjánsdóttur býr í Reykjavík ásamt konu sinni Hafdísi og tveimur börnum, þeim Hilmari Aroni og Ástu Guðrúnu. Birgir, sem er 36 ára gamall, kláraði bakaranám árið 2015 en hefur verið viðloðinn bakstur síðan árið 2001 bæði hjá Arnóri bakara og Bergi í Vilberg í […]

Silja Dögg Gunnarsdóttir: Tækifærin eru til staðar

Ísland er fámennt og dreifbýlt land og því er góð heilbrigðisþjónusta fyrir alla heilmikil áskorun. En markmiðið er að íbúar njóti jafnræðis. Heilbrigðisáætlun Við Framsóknarmenn gerðum heilbrigðisáætlun fyrir Ísland, að forgangsmáli okkar. Málið var samþykkt vorið 2017. Áætlunin felur í sér að fé verði úthlutað til stofnana með markvissum hætti og tekið tillit til íbúaþróunar, […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.