Ragnar �?skarsson: Í von um góðan vetur
Á morgun fáum við að kjósa. Tvær síðustu ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins og fylgiflokka þeirra hafa hrökklast frá völdum vegna óeiningar en ekki síður vegna hneykslismála. Á síðust árum hefur enn og aftur og betur og betur komið í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn gætir sannarlega einkahagsmuna í stað hagsmuna almennings. Auk þess eru forystumenn flokksins flæktir í alls konar spillingarmál eins og okkur hefur rækilega verið bent á í umfjöllun fjölmiðla.
Vinstrihreyfingin- grænt framboð eru augljós andstæða við allt þetta. Hreyfingin stendur við þá stefnu sem hún boðar. Hún hefur á að skipa traustu fólki og forystukonu sem nýtur mikillar virðingar langt út fyrir allar flokkslínur, forystukonu sem sannarlega er verðugt forsætisráðherraefni í nýrri ríkisstjórn.
En fyrir hvað standa vinstri græn. Lítum á nokkra þætti og örlítinn samanburð.
· Vinstri græn ætla að færa skattabyrði af almenningi á auðmenn. Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins hafa lækkað skatta á auðmenn en hækkað skatta á almenning.
· Vinstri græn ætla að efla samfélagslega rekna heilbrigðisþjónustu fyrir alla. Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins hafa nánast rústað heilbrigðiskerfinu og leggja nú höfuðáherslu á einkarekið heilbrigðiskerfi sem stjórnast af gróðasjónarmiðum og þar sem efnahagur fólks ræður hvers konar heilbrigðisþjónustu við fáum.
· Vinstri græn ætla að gera menntun gjaldfrjálsa svo að ekki fari eftir efnahag hverjir hennar geta notið. Sjálfstæðisflokkurinn vill einkerekið skólakerfi knúið áfram af gróðasjónarmiðum.
· Vinstri græn ætla að efla almenningssamgöngur á landi í lofti og á sjó og hafna vegtollastefnu Sjálfstæðisflokksins.
· Vinstri græn ætla að gera ungu fólki kleift að tryggja sér húsnæði á viðráðanlegum kjörum og hafna okurstefnu Sjálfstæðisflokksins.
Og það er svo margt margt fleira sem andstæðurnar í íslenskum
stjórnmálum snúast um um þessar mundir þótt það sé ekki tíundað hér. Vinstri hreyfingin grænt framboð er því augljós kostur fyrir þá sem vilja stöðugleika, heiðarleika og réttlátt þjóðfélag þar sem hagsmunir almenning eru teknir fram yfir einkahagsmuni hinna ríku.
Listabókstafur Vinstri grænna er V.
Í von um góðan vetur!
Ragnar �?skarsson

Nýjustu fréttir

Andrea, Sandra og Díana í landsliðshópi Arnars
Látum rannsóknirnar vísa okkur veginn
Við þurfum að halda vinnunni áfram og hafa trú á okkur
Alma Ingólfsdóttir frá Þjóðhátíðarnefnd 
Bæta á aðkomu og ásýnd við Sprönguna
ÍBV tapaði með níu marka mun gegn Haukum
Vestmannaeyjahlaupið fór fram í blíðskaparveðri
ÍBV missti niður tveggja marka forskot gegn Stjörnunni
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.