Mætum prúðbúin á setningu í dag

Í dag, föstudaginn 5. júlí, kl. 16:30 hefst hátíðardagskrá á Skanssvæðinu í tilefni af 100 ára afmæli Vestmannaeyjabæjar og setningu Goslokahátíðar.  Þeir einstaklingar sem eiga þjóðbúninga – karlar sem konur – hvort heldur er íslenski þjóðbúningurinn eða þjóðbúningur annarra landa eru hvattir til að nýta tækifærið og skarta sínu fegursta. Búið er að lofa frábæru […]

Myndlistarfélagið – Vestmannaeyjabær 100 ára

Kl. 16:00 í dag verður opnuð athyglisverð sýning í sal Tónlistarskólans. Þar sýna félagar í Myndlistarfélagi Vestmannaeyja og kalla þau sýninguna „Vestmannaeyjabær 100 ára“ sem er vel við hæfi nú þegar við minnumst þess að 100 ár eru frá stofnun Vestmannaeyjakaupstaðar. Goslokasýningin er stærsti sýningarviðburður Myndlistarfélagsins ár hvert. Sýningarstjóri er Gunnar Júlíusson. Allir velkomnir og […]

Dagskrá föstudags

Í dag heldur dagskrá Goslokahátíðar áfram og er margt í boði í dag, föstudag. Hæst ber að nefna setningu hátíðarinnar og barnaefni í tengslum við hana. Þá verða tvennir stórtónleikar í kvöld. Auk þess er fjöldi sýninga um allan bæ. Goslokahátíð 2019 – Dagskrá föstudags Föstudagur 5. júlí Kl. 10:00-                   Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum: Volcano open (fyrri […]

Afmælishátíð á Skansinum

Á morgun, föstudag, hefst dagskrá á Skanssvæðinu með sýningu Leikhópsins Lottu á Litlu hafmeyjunni kl. 15:30. Sýningin tekur um eina klst. Í framhaldi af henni, eða kl. 16:30, hefst afmælishátíðin þar sem eftirfarandi flytja stutt ávörp:  Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsáðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- sveitastjórnarráðherra, Eliza Reid forsetafrú, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, Arnar Sigurmundsson f.h. […]

Viðar Breiðfjörð – Lífsviljinn og lífsgleðin

Bæjarlistamaður Vestmannaeyja árið 2019, Viðar Breiðfjörð sýnir verk sín í Cratious-krónni á Skipasandi og verður sýningin opnuð klukkan 20.00 í kvöld. Verkin á sýningunni hefur Viðar unnið á síðustu tveimur árum auk verka sem hann hefur unnið í sumar. „Mín myndlist eru þakkir fyrir að vera á lífi,“ sagði Viðar sem var staddur á Þórshöfn […]

Leikhópurinn Lotta sýnir Litlu hafmeyjuna

Vakin er athygli á sýningu Leikhópsins Lottu á Litlu hafmeyjunni á morgun, föstudaginn 5. júlí, kl. 15:30 á Skanssvæðinu. Sýningin er í boði Ísfélagsins. Um er að ræða frábæra leiksýningu sem hefur notið vinsælda um land allt. Sýningin verður á Skanssvæðinu ATH: Sýningin verður á Skanssvæðinu og í beinu framhaldi hefst 100 ára afmælishátíð Vestmannaeyjabæjar […]

Gíslína sýnir í Safnaðarheimilinu – Mitt á milli

Gíslína Dögg Bjarkadóttir, myndlistarkona tók stóra ákvörðun í vetur þegar hún ákvað að helga sig listinni eingöngu.  Um leið sýndi Gíslína að hún er ekki kona einhöm því áður hafði hún breytt úr hefðbundna málverkinu yfir í grafík en viðfangsefnið er það sama, konan sem hefur verið áberandi í verkum hennar og myndir þar sem […]

Ringo, Bowie, Davíð Oddsson og fagrar eyjar

Í dag klukkan 17.30 opna Hulda Hákon og Jón Óskar sýningu í Einarsstofu sem þau kalla fjallið eina. Það er ekki í fyrsta skipti sem þau listahjón slá saman en verkin eru eins ólík og þau eru mörg.  Og þær eru margar persónurnar og náttúrumyndirnar sem birtast í myndum þeirra. Þar koma m.a. við sögu […]

Eyjakonurnar Silja Elsabet og Helga Bryndís í Hvítasunnukirkjunni

Í kvöld kl. 20.30 verða Eyjakonurnar, Silja Elsabet Brynjarsdóttir óperusöngkona og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanónleikari með tónleika í stóra salnum í Hvítasunnukirkjunni sem þær kalla, Oddgeir og óperur. Silja Elsabet, mezzosópran hlaut sína grunn tónlistarmenntun í Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Eftir stúdentspróf hóf Silja nám við Söngskólann í Reykjavík og lauk áttunda stigi árið 2015. Síðastliðin fjögur ár […]

Hátíð í bæ – Goslokahátíðin hefst í dag

Í dag hefst dagskrá Goslokahátíðar með opnun myndlistarsýningar í flugstöðinni kl. 16.00. Hver viðburðurinn rekur svo hvern annan fram eftir kvöldi. Svona lítur dagskrá dagsins út: Goslokahátíð 2019 – Dagskrá fimmtudags Fimmtudagur 4. júlí Kl. 16:00 Flugstöð: Tolli Morthens opnar myndlistarsýningu. Kl. 17:00 Akóges: Sigurfinnur Sigurfinnsson opnar myndlistarsýninguna „Sigurfinnur 75 ára, 75 myndir“. Tónlistaratriði Sveinbjörns Grétarssonar […]