�?Mjög spennandi kostur�?

„Það stefnir allt í að ég semji við Linköping. Mér leist rosalega vel á félagið og allt sem snýr að því og þetta er bara mjög spennandi kostur. Vonandi get ég gengið frá þessu sem fyrst, sagði markadrottningin Margrét Lára Viðarsdóttir við Morgunblaðið í gær en hún kom heim í vikunni eftir að hafa skoðað […]
Afli botnvörpunga í nóvember
Ansi góð byrjun hjá Ottó N Þorlákssyni RE. tæp 200 tonn í sinni fyrstu löndun. Þar af var ufsi um 120 tonn og karfi 65 tonn. Klakkur SH var með rúm 120 tonn af þorski í sínum afla. Athyglisverður afli hjá Suðurey VE, 104 tonn í fyrstu löndun. Suðurey VE er 4 mílna togari og […]
Herrakvöldið á morgun föstudaginn 14. nóv.
Knattspyrnudeild Selfoss heldur sitt árlega herrakvöld föstudaginn 14. nóvember. Að þessu sinni verður skemmtunin haldin í Þingborg, en það er félagsheimilli Flóamanna, staðsett ca. 5 km austur af Selfossi. Rúta mun ferja mannskapinn og fer fyrsta ferð kl. 18.30. Veislukokkar Menam sjá um matinn af sinni alkunnu snilld og skemmtiatriðin eru einnig í dýrari kantinum. […]
Atli til reynslu hjá FK Haugasund

Norska 2. deildarfélagið Asker hefur boðið Atla Heimissyni, leikmanni ÍBV, samning en þetta staðfesti hann í samtali við blaðamann Frétta í gær. Atli, sem var valinn besti leikmaður 1. deildarinnar í sumar, hefur æft með Asker að undanförnu og hafa forráðamenn félagsins hrifist af frammistöðu hans og boðið honum samning. Atli er samningsbundinn Eyjamönnum til […]
Seinkun á Herjólfi

Vegna bilunar seinkar seinni ferð Herjólfs til kl. 17.00. Þegar skipið kom til heimahafnar í dag var ekki hægt að koma öðrum af veltiuggunum inn og því gat skipið ekki lagst rétt að bryggju. Byrjað var á því að leggja skipið öfugt að bryggju, með stefnið að bryggjunni en þannig er ekki hægt að lesta […]
Bjarni Hólm til Danmerkur

Bjarni Hólm Aðalsteinsson leikmaður Meistaraflokks ÍBV í knattspyrnu mun á næstu dögum fara til Danmerkur til þess að skoða aðstæður hjá 2.deilar liðinu FC Fyn. Félagið situr sem stendur í öðru sæti deildarinnar með 24 stig og er í mikilli baráttu um að komast upp. Bjarni spilaði 21 leik með ÍBV í sumar og skoraði […]
Litlu munaði að illa færi

Um klukkan hálf sjö í morgun var björgunarbáturinn Þór kallaður út þar sem togskipið Gullberg VE rak stjórnlaust við hafnarmynnið í Vestmannaeyjum. Skipið hafði verið á útleið þegar það varð vélarvana austast í innsiglingu Vestmannaeyjahafnar. Talsverður straumur var og rak skipið hratt í átt að sandfjörunni en bæði björgunarbáturinn Þór og hafnsögubáturinn Lóðsin fóru til […]
Frábærar fréttir fyrir fótboltann

Nú hafa tilboð í byggingu knattspyrnuhús verið opnuð og er það sérstakt ánægjuefni að tvö tilboð bárust sem eru undir kostnaðaráætlun bæjarins. Aðaltilboð Steina og Olla ehf var tæplega 93% af kostnaðaráætlun og frávikstilboð Smíðanda ehf var rúmlega 91% af kostnaðaráætlun. Sérstaka athygli vekur tilboð 2 frá Steina og Olla. Þar er um að ræða […]
Botnfiskaflinn eykst frá í fyrra
Heildarbotnfiskafli Íslendinga í október varð 9,3% meiri en í október 2007. Alls var veiðin rúmlega 41.000 t en var tæp 38.000 t í sama mánuði 2007. Heildaraflinn í nýliðnum mánuði var hins vegar 6,9% minni en í október 2007. Í ár veiddust alls 91.408 t í október en 98.132 í sama mánuði 2007. (meira…)
Morgunverðarfundur á Selfossi í gær
Hugmyndin á bak við morgunverðafundi sem þennan á Selfossi er að auka tengsl milli stjórnar SFR og félagsmanna, ásamt því að stuðla að meiri samheldni og virkni innan félagsins. Um 30 manns voru á fundinum auk fulltrúa frá skrifstofu SFR og úr stjórn SFR. Rætt var um núverandi þjónustu og starfsemi SFR, þjónustu sem SFR […]