Forvarnir og áhrif efnahagsástandsins rædd á fundi aðalstjórnar
Aðalstjórn Umf. Selfoss hélt fund í gærkvöldi í Tíbrá og var það 11. fundur aðalstjórnar á árinu. Fundir aðalstjórnar eru að jafnaði einu sinni í mánuði. Á fundinum var m.a. samþykkt ný fræðslu- og forvarnarstefna félagsins. Ákveðið var að halda sérstakan forvarnadag félagsins í samvinnu við grunnskólana þar sem megin áhersla er lögð á 8.-10. […]
Sviðaveisla starfsmanna
Fangaverðir á Litla-Hrauni ásamt mökum héldu sína árlegu sviðaveislu í Hliðskjálf, sal hestamanna á Selfossi fyrir skömmu. Björn Hilmarsson og Ólafur Jónsson á Eyrarbakka sáu um eldamennsku með glæsibrag. Þátttaka var mjög góð og voru rúmlega fimmtíu gestir. Sjá fleiri myndir undir – meira- (meira…)
Íslendingar úti kuldanum
Makrílveiðiþjóðin Íslendingar, sem veiddi 112 þúsund tonn af makríl á þessu ári eða 20% af áætluðum heildarafla í NA-Atlantshafi, fékk ekki úthlutað einu kíló við kvótaskiptingu makrílsins fyrir næsta ár sem fram fór í London í síðustu viku. Þvert á móti voru Íslendingar gagnrýndir fyrir veiðar sínar á makríl í eigin lögsögu. (meira…)
Yfirlýsing frá bæjarfulltrúum Hveragerðisbæjar
Bæjarfulltrúar Hveragerðisbæjar hafa ákveðið að taka höndum saman og vinna í sameiningu að fjárhagsáætlunargerð bæjarins fyrir árið 2009. Allir bæjarfulltrúar hvar í flokki sem þeir standa eru sammála um að efnahagslegt umhverfi sveitarfélaga og þjóðarinnar allrar sé með þeim hætti að brýna nauðsyn beri til að ráðamenn slíðri hin pólitísku sverð og einbeiti sér að […]
Gróttuleiknum frestað

Karlalið ÍBV í handbolta átti að taka á móti Gróttu á laugardaginn í Vestmannaeyjum. Leiknum hefur hins vegar verið frestað og verður leikinn um næstu helgi 29. nóvember næstkomandi. Leikið verður klukkan 14.00. (meira…)
Blessuð síldin er kærkominn fengur

Blessuð síldin hefur alltaf verið kærkomin fengur og er nú sem ljós í myrkri þegar þrengir að í efnahagsmálum þjóðarinnar. Júpíter ÞH landaði fyrsta farminum á vertíðinni hjá Ísfélaginu í síðustu viku. Í gær, miðvikudag, var hann að landa þriðja túrnum og búinn að ná rúmlega tvö þúsund tonnum. Vinnslustöðin var búin að taka á […]
Sópran, trompet og orgel.
Sunnlenska tónlistarfólkið Margrét Stefánsdóttir sópransöngkona, Jóhann Stefánsson trompetleikari og Hilmar Örn Agnarsson orgelleikari munu halda tónleika næstunni. Á efnisskránni eru fjölbreytt verk fyrir sópran, trompet og orgel. Má nefna verk eftir Bach, Händel, Scarlatti, Atla Heimi Sveinsson og Egil Ólafsson. Tónleikarnir verða á eftirtöldum stöðum: (meira…)
Ekki hægt að taka afgerandi afstöðu

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur staðið fyrir hljóðmælingum frá Höllinni undanfarið en starfsleyfi Hallarinnar hefur takmarkast við skemmtanahald til klukkan eitt eftir miðnætti. Ástæðan er að of mikill hávaði hefur mælst frá staðnum og ekki talist viðunandi. Eigendur Hallarinnar hafa staðið fyrir breytingum og hljóðeinangrun á húsnæðinu og Höllin fékk undanþágu til dansleikjahalds gagngert til að mælingar […]
Kem jafnvel nakinn fram

Nú styttist í að Eddan verði afhent við hátíðlega athöfn. Eyjamenn eiga í það minnsta einn fulltrúa á Eddunni en það er Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson, leikari sem leikur aðalhlutverkið í stuttmyndinni Hnappurinn sem er tilnefnd. Guðmundur býr nú í Hollywood þar sem hann var m.a. við nám en starfar nú við list sína ytra. Vaktin […]
Gistinætur og gestakomur á hótelum í september 2008
Gistinætur á hótelum í september síðastliðnum voru 121.700 en voru 120.700 í sama mánuði árið 2007, því má segja að lítil breyting sé milli ára. Fjölgun var í flestum landshlutum nema á höfuðborgarsvæðinu. Á Suðurlandi voru gistinætur svipaðar milli ára. Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á Austurlandi um rúm 20%, eða úr 4.100 í 4.900. (meira…)