Skákþing 2022, skákkennsla og góður árangur á Íslandsmóti skákfélaga

Taflfélag Vestmannaeyja var með þrjár 6 manna sveitir á mjög fjölmennu Íslandsmóti skákfélaga 2021-2022, en seinnihluti mótsins fór fram í Fjölnishöllinni í Grafarvogi 5.-6. mars sl. Sveitirnar þrjár skipaðar félagsmönnum TV sem ýmist eru búsettir í Eyjum eða á meginlandinu. Alls voru tefldar sjö umferðir á mótinu, en fjórar fyrstu fóru fram í október 2021. Alls tóku […]
Aðalsafnaðarfundur Ofanleitissóknar og Kirkjugarðs Vestmannaeyja

Sunnudaginn 20. mars verður haldinn aðalsafnaðarfundur Ofanleitissóknar og Kirkjugarðs Vestmannaeyja í Safnaðarheimili Landakirkju. Fundurinn fer fram að lokinni messunni sem hefst kl. 14.00. Dagskrá fundar: – Aðalfundarstörf skv. lögum og starfsreglum Þjóðkirkjunnar. Sóknarnefnd Landakirkju (meira…)
Áformað að stækka miðbæinn út í hraun

Svæði sem í dag er undir hrauni verður í boði fyrir verslun, þjónustu og íbúðir ef áform bæjaryfirvalda ganga eftir samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins. Málið var tekið fyrir í umhverfis- og skipulagsráði þar sem samþykkt var að fela umhverfis- og framkvæmdasviði að skrifa minnisblað um hvernig standa skuli að því að útbúa lóðir á svæðinu. Svæðið […]
Bættar samgöngur – fyrir þig

Til að Vestmannaeyjar verði að enn eftirsóknarverðari búsetukosti, til að bæta lífsgæði íbúa og til að efla fjölbreytt atvinnulíf er mikilvægt að samgöngur komist í betra horf. Þrátt fyrir að vissulega hafi veður verið slæm eru aðstæður Landeyjahafnar hvergi nærri nógu góðar og flugsamgöngur þarf að bæta. Dýpkun Landeyjahafnar er fyrsta breytan sem einfaldast […]
Jafn aðgangur fyrir öll börn

Ég vill skoða möguleikann á að öll börn upp að 8 ára aldri hafi jafnan aðgang af öllum íþróttum með einu sanngjörnu gjaldi! Hver þekkir ekki að vera búinn að klára frístundarstyrkinn í eina íþrótt og barnið missir áhugan og vill stunda aðra íþrótt ? Eflaust hafa margir foreldrar þurft að neita börnum sínum á […]
Alvaran – 60mínus og fleira

Ég sækist eftir oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins í komandi prófkjöri þann 26.mars í Eyjum, þar sem ég tel að kraftar mínir nýtist til að leiða samstilltan hóp fólks til góðra verka fyrir samfélagið. Ég legg áherslu á ábyrgan rekstur sveitarfélagsins þar sem öflug fjármálastjórn og forgangsröðun skapar tækifæri til að veita okkur íbúum betri þjónustu til framtíðar. […]
Lýsir þungum áhyggjum af áformum dómsmálaráðherra

Staða sýslumannsins í Vestmannaeyjum var til umræðu á fundi bæjarráðs í vikunni en bæjarráð samþykkti samhljóða að taka þennan dagskrárlið inn með afbrigðum. Í ljósi frétta um ákvörðun dómsmálaráðherra um niðurfellingu lögsagnarumdæma sýslumanna á landsbyggðinni, undir merkjum stafrænnar og skilvirkra stjórnsýslustöðva sýslumanns í heimabyggð, ákvað bæjarráð Vestmannaeyja að fjalla um málið. Samkvæmt upplýsingum bæjarráðs stendur […]
Við getum gert betur

Innviðirnir Þar sem ég sækist eftir 2-4 sæti í komandi prófkjöri í Vestannaeyjjum þá langar mig að minnast á innviðina okkar. Þegar kemur að grundvallarskipulagi kerfisins okkar eða innviðunum þá er ég í fyrsta lagi vel kunnug skólakerfinu, með þrjú börn í grunnskóla. Heilbrigðisþjónustunni, við fjölskyldan nýtum okkur hana eins og aðrir en við Siggi […]
Staðan á skipulagsmálum í Vestmannaeyjum og hvað er framundan

Mikil uppbygging hefur verið í Vestmannaeyjum undanfarin ár hjá einstaklingum, fyrirtækjum og sveitarfélaginu sem er mikið gleðiefni. Í dag eru aðeins 15 lóðir lausar fyrir einbýlishús en engar fyrir fjölbýlishús, atvinnuhúsnæði né fyrir frístundahús. Árið 2020 voru 33 lausar lóðir en frá þeim tíma hefur verið gert nýtt deiliskipulag og lóðir auglýstar í Áshamrinum, athafnasvæði […]
Undirbúa móttöku flóttamanna frá Úkraínu

Móttaka flóttafólks var til umræðu á fundi bæjarráðs í gær en þann 9. mars sl., sendi félags- og vinnumálaráðuneytið, sveitarfélögum erindi vegna móttöku flóttafólks. Ástandið í Úkraínu og vaxandi fjöldi flóttafólks hefur verið áberandi í umræðunni síðustu daga og vikur. Hafa nokkur sveitarfélög lýst yfir vilja til að taka á móti flóttafólki. Gert er ráð […]