Mikið stökk að fara frá ÍBV til Vejle

Felix Örn Friðriksson, varnamaðurinn snjalli fór frá ÍBV í sumar til Danmerkur og spilar nú með úrvalsdeildarliðinu Vejle. Felix Örn er fæddur 1999 á að baki 54 leiki fyrir ÍBV og hefur skorað eitt mark. Auk þess á hann að baki tvo landsleiki fyrir A-landslið Íslands en einnig hefur hann leikið með yngri landsliðum. Hann […]
Það sem ég er búin að vera að stefna að síðan ég var lítil

Sigríður Lára Garðarsdóttir fyrverandi leikmaður ÍBV og landsliðskona skrifaði nú í ágúst undir sammning við norska liðið Lilleström. Lilleström er eitt besta liðið í Skandinavíu en síðustu fjögur ár hefur liðið orðið norkur meistari. Þegar blaðamaður heyrði í Sísi Láru, eins og hún er alltaf kölluð, á dögunum var hún búin að koma sér vel […]
ÍBV meistarar meistaranna

Eyjamenn bættu enn einum bikarnum í safnið nú í kvöld þegar þeir fengu silfurhafa Coca-cola bikarsins, Fram í heimsókn í Meistaraleiknum. Framarar byrjuðu leikinn ágætlega og það tók Eyjamenn smátíma að finna taktinn. En tóku fljótlega öll völd á vellinum og stýrðu leiknum vel. ÍBV náði mest 10 marka forystu og dreifði Erlingur Richardsson, þjálfari […]
Meistari meistaranna í dag

Þá er loksins komið að fyrsta leik vetrarins í handboltanum.Í dag fer fram leikurinn um hvaða lið er meistari meistaranna, þar sem bikarmeistar og Íslandsmeistarar síðasta tímabils mætast. Þar sem ÍBV vann báða titlana á síðasta ári þá verða andstæðingarnir lið Fram þar sem þeir fóru í bikarúrslitaleikinn á móti ÍBV. Strákarnir vonast til þess […]
Skiptu með sér stigunum í botnbaráttunni

ÍBV tók á móti Víkingi frá Reykjavík í botnbaráttuleik í Pepsi-deild karla í dag. Geoffrey Castillion kom Víkingum yfir á sjöundu mínútu. Sindri Snær Magnússon jafnaði hins vegar fyrir ÍBV á 26. mínútu eftir fyrirgjöf Kaj Leo í Bartalsstovu. Liðin sóttu á víxl og fengu bæði ágætis færi en hvorugu liðinu tókst að skora. Þau […]
Hampiðjan vann fyrirtækjakeppnina í golfi um helgina

Fyrirtækjakeppnin í golfi var spiluð í gær. Fjöldi fyrirtækja styrkir klúbbinn í þessu móti og hafa viðtökur aldrei verið betri en núna Sigurverar mótsins voru Kristófer og Rúnar Gauti sem spiluðu fyrir Hampiðjuna í öðru sæti voru Daníel og Nökkvi fyrir TPZ og í þriðja Bjarki og Lárus fyrir Miðstöðina. (meira…)
Eyjamenn taka á móti Víking í dag

ÍBV tekur á móti Víking í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í dag, leikurinn er á hásteinsvelli kl: 14:00. ÍBV er nú með 22 stig og Víkingur rétt á eftir eða tveimur sætum neðar með 20 stig. (meira…)
Svo gott sem búið hjá KFS

Eftir 0-6 tap gegn Reyni frá Sandgerði á heimavelli í dag er svo gott sem úti um vonir KFS að komast upp í 3. deildina. Þar sem verið er að fjölga liðum í þriðju deildinni fara þrjú lið upp úr þeirri fjórðu að þessu sinni. En það verður að teljast ólíklegt að KFS verði eitt […]
KFS spila í 8-liða úrslitum í dag

8-liða úrslitin í úrslitakeppni 4 deildar karla í knattspyrnu hefst í dag. Þrjú lið geta komist upp úr 4. deildinni og eru KFS þar í flokki. Þeir taka á móti Reynir S. á Týsvelli klukkan 12:00 í dag. (meira…)
Gunnar Heiðar með þrennu í kveðjuleiknum

Hann var þýðingarlítill leikur ÍBV og Grindavíkur í lokaumferð Pepsi-deild karla í dag. Bæði lið gengu því pressulaus inn á Grindavíkurvöll. Leikurinn var síðasti leikur ÍBV undir stjórn Kristjáns Guðmundssonar, þjálfara. En einnig var þetta síðasti leikur Gunnars Heiðars Þorvaldssonar á ferlinum og má svo sannarlega segja að hann hafi kvatt með stæl. Leikurinn var […]