Andlát: Þórey Inga Jónsdóttir

Ástkær móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma,ÞÓREY INGA JÓNSDÓTTIRHásteinsvegi 62, Vestmannaeyjum,lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum þann 5. mars.Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug í okkar garð. Einnig þökkum við sérstaklega starfsfólki HSU Vestmannaeyjum fyrir einstaka umönnun í veikindum hennar.Jón Ben Ástþórsson,   Anna Kristín Hjálmarsdóttir,Jón Sigurðsson,Þórey Gísladóttir,  […]

Andlát: Magnús Örn Guðmundsson

Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi Magnús Örn Guðmundsson Skipstjóri lést á dvalar-og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum 4. febrúar síðastliðin.Útför hans fer fram frá Landakirkju Fimmtudaginn 13. febrúar kl. 14.00.Þeir sem vilja minnast hans er bent á Alzheimerfélagið í Vestmannaeyjum Sigrún Hjörleifsdóttir, Ómar Örn Magnússon, Anna Kristín Magnúsdóttir, Hermann Þór Marínósson, Hjördís Inga […]

Andlát: Maríanna Sigurðardóttir

Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamamma, amma og langammaMaríanna SigurðardóttirBúhamri 68Vestmannaeyjumlést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands Vestmannaeyjum miðvikudaginn 1. janúar 2020.Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.Jens Varnek NikulássonJónsteinn Jensson og fjölskyldaÁsdís Jensdóttir og fjölskylda   (meira…)

Leif Magnús Grétarson Thisland – minning

Leif Magnús fæddist í Kristiansand í Noregi 22. janúar 2003. Hann lést af slysförum í Núpá í Eyjafirði 11. desember 2019. Þú varst bara 7 ára þegar þú ráfaðir aleinn í skóginum við Mandal. Heimabæ móður þinnar í Noregi og þú leitaðir hennar. Hún hafði verið tekin frá þér, farin upp til ljóssins sem þú […]

Útför Sævars Brynjólfssonar frestað vegna slæmrar veðurspár

Útför Sævars Brynjólfssonar sem fara átti fram á morgun, þriðjudaginn 10. desember, frá Keflavíkurkirkju hefur verið frestað til mánudagsins 16. desember kl.13 vegna slæmrar veðurspár. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,Sævar Brynjólfssonskipstjóri,Pósthússtræti 3, Keflavík,lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnudaginn 1. desemberÚtförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, mánudaginn 16. desember kl.13. Ingibjörg Hafliðadóttir,Bryndís Sævarsdóttir,  Einar […]

Andlát: Sævar Brynjólfsson

Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,Sævar Brynjólfssonskipstjóri,Pósthússtræti 3, Keflavík,lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnudaginn 1. desemberÚtförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 10. desember kl.13. Ingibjörg Hafliðadóttir,Bryndís Sævarsdóttir,  Einar Þ. Magnússon, Hafliði Sævarsson,  Jenný Lovísa Þorsteinsdóttir, Brynjólfur Ægir Sævarsson,   Áslaug Ármannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. (meira…)

Andlát: Magnús Bjarnason

Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,tengdafaðir og afi,Magnús BjarnasonMuggur í Garðshornilést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum 21. nóvember.  Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn 29. nóvember kl. 14.Unnur Gígja Baldvinsdóttir,Margrét Lilja Magnúsdóttir,   Jóhann PéturssonBjarni Ólafur Magnússon,Jenný Huld, Magnús Ellert, Baldvin Búi,​Gígja Sunneva og Snjólaug Hildur.   (meira…)

Andlát: Birna Valgerður Jóhannesdóttir

Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma. Birna Valgerður Jóhannesdóttir frá Kirkjulundi vestmannaeyjum lést á dvalarheimilinu Hraunbúðum þann 22. október síðastliðinn. Útförin fer fram frá Landarkirkju Vestmannaeyjum föstudaginn 1. nóvember klukkan 11.00. Jóhann Ingi Einarsson, Alda Jóhanna Jóhannsdóttir, Óskar Ólafsson, Erna Sigríður Jóhannsdóttir, Eggert Gottskálksson, barnabörn og barnabarnabörn. (meira…)

Minning: Magnús Þórarinsson

Í dag kveðjum við Eldri Kylfingar GV kæran vin okkar og félaga Magnús Þórarinsson eða Magga Múrara eins hann var alltaf kallaður hinstu kveðju. Maggi var ekki bara bæði frábær kylfingur og góður kennari,Maggi var golf í hnotskurn,kurteis sjéntilmaður,gafst aldrei upp og „ alltaf ákveðinn í að gera sitt allra besta,“alltaf“ og góður leiðtogi sem […]

Andlát: Sigríður Björnsdóttir

Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR frá Bólstaðarhlíð, Dvalarheimilinu Hraunbúðum, Vestmannaeyjum lést að morgni þriðjudags 30. júlí síðastliðins. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 10. ágúst klukkan 14.00 Elías Björn Angantýsson og fjölskylda. Edda Angantýsdóttir og fjölskylda. . (meira…)

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.