Andlát: Baldur Þór Bragason

Ástkær eiginmaður, faðir, bróðir, tengdafaðir, afi og vinur Baldur Þór Bragason Lést eftir stutt en erfið veikindi í faðmi fjölskyldunnar þann 8.janúar. Vegna takmarkana verður 100 manna hámark í jarðarförinni en henni verður verður streymt frá Landakirkja.is Helen Arndís Kjartansdóttir Bára Bragadóttir Einar Birgir Baldursson – Íris Sif Hermannsdóttir Trausti Ágúst Hermannsson – Telma Magnúsdóttir […]

Andlát: Þórína Baldursdóttir

Elskuleg dóttir okkar, systir, mágkona og frænka, Þórína Baldursdóttir, varð bráðkvödd að heimili sínu 3. janúar. Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum, laugardaginn 22. janúar kl. 13:00 Vegna samkomutakmarkana verður 100 manna hámark. Jarðarförinni verður streymt frá Landakirkja.is Baldur Aðalsteinsson     Guðbjörg Hjálmarsdóttir Hjálmar Baldursson Aðalsteinn Baldursson Soffía Baldursdóttir    Guðmundur Ingi Jóhannesson Sylvía […]

Minning: Páll Pálmason

Páll Pálmason

Fallinn er nú frá Páll Pálmason félagi okkar í Kiwanisklúbbnum Helgafelli í Vestmannaeyjum og einn af bestu leikmönnum Íþróttabandalags Vestmannaeyja frá upphafi og sá leikjahæsti, en Palli eins og við öll þekkjum hann var einna af albestu markvörðum landsins um árabil og lék með okkar landsliði á sínum tíma. Palli var fæddur á Hólagötu í […]

Minningarorð Páll Pálmason

Félagi okkar og vinur Páll Pálmason lést 6. nóv. s.l. á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja eftir erfið veikindi. Með Palla Pálma eins og hann var ávallt kallaður er genginn félagi sem um langt árabil var burðarás í knattspyrnuliði okkar Eyjamanna. Hann hóf að leika knattspyrnu með Knattspyrnufélaginu Týr árið 1958 þá þrettán ára gamall. Hann lék svo […]

Andlát: Páll Pálmason

Elskulegur eiginmaður minn Páll Pálmason, lést laugardaginn 6. nóvember 2021 á Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum. Útför fer fram frá Landakirkju föstudaginn 19. nóvember kl. 13. Vegna sóttvarna þurfa kirkjugestir að sýna fram á neikvætt covid hraðpróf við inngöngu, ekki eldra en 48 klst. Sækja þarf tímanlega um hraðpróf á heilsuvera.is. Streymt verður frá athöfninni á […]

Andlát: Jóhann Ingi Einarsson

Elskulegur faðir okkar tengdafaðir, afi og langafi. Jóhann Ingi Einarsson frá Götu í Vestmannaeyjum Lést í faðmi fjölskyldunnar á Hraunbúðum þann 17 október síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 29 október klukkan 15.00. Athöfninni verður streymt á vef Landakirkju, landakirkja.is. Fjölskyldan þakkar starfsfólki Hraunbúða fyrir einstaka umönnun og væntumþykju. Alda Jóhanna Jóhannsdóttir – […]

Andlát: Halldóra Kristín Björnsdóttir

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HALLDÓRA KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR frá Bólstaðarhlíð í Vestmannaeyjum, lést í faðmi fjölskyldunnar á Hraunbúðum miðvikudaginn 13. október. Jarðarförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 29. október klukkan 13. Athöfninni verður streymt á vef Landakirkju, landakirkja.is. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Hraunbúða. Fjölskyldan þakkar […]

Andlát: Jón Bernódusson

Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir JÓN BERNÓDUSSON verkfræðingur, Hvammsgerði 8, Reykjavík, sem lést á Landspítala Fossvogi miðvikudaginn 22. sept. 2021, verður jarðsunginn frá Landakirkju í Vestmannaeyjum föstudaginn 1. okt. kl. 15. Martina Bernódusson, María Lára Jónsdóttir, Aðalbjörg Jóhanna Jónsdóttir og systkini hins látna. (meira…)

Andlát: Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir

Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangaamma Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir frá Skálholti í Vestmannaeyjum Lést á Hraunbúðum 15. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða fyrir hlýja og góða umönnun. Þóra H Egilsdóttir – Arngrímur Magnússon Kristján Egilsson – Pála B Pálsdóttir Guðjón Egilsson Sigurbjörn […]

Andlát: Ása Soffía Friðriksdóttir

Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma Ása Soffía Friðriksdóttir Ása á Hól Lést á heimili sínu Hraunbúðum laugardaginn 21. ágúst. Útförin fer fram frá Landakirkju föstudaginn 3. september kl 13:00. Athöfninni verður streymt á heimasíðu Landakirkju www.landakirkja.is Friðrik Gíslason-Ingibjörg Sigurjónsdóttir Bjarki Friðriksson-María Ösp Karlsdóttir Sigríður Ása Friðriksdóttir-Ian Jeffs Friðrik, Hákon, Birnir, Svandís, Liam og Erik […]

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.