Aðalfundadagur sjálfstæðisfélaganna í Eyjum

Áður boðaðir aðalfundir sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum verða haldnir í Ásgarði, félagsheimili Sjálfstæðismanna í dag, fimmtudaginn 12. febrúar. Aðalfundur Eyverja verður haldinn kl. 17:00. Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja verður kl. 20:00 og aðalfundur Fulltrúaráðs verður kl. 21:00. Á dagskrá fundanna eru venjuleg aðalfundarstörf, segir í tilkynningu frá stjórnum Sjálfstæðisfélaganna í Vestmannaeyjum. (meira…)
Herjólfur til Þorlákshafnar

Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar fyrri part dags í dag vegna aðstæðna og dýpis í Landeyjahöfn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skipafélaginu. Þar segir jafnframt að brottför sé frá Vestmannaeyjum er klukkan 07:00 og brottför frá Þorlákshöfn klukkan 10:45. Tilkynning um siglingar seinni part dags verður gefin út fyrir klukkan 15:00. Farþegar eru minntir […]
ÍBV fær Aftureldingu í heimsókn

ÍBV tekur á móti Aftureldingu í 18. umferð Olísdeild karla í kvöld klukkan 19:30 í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Viðureignin gæti reynst afar mikilvæg í baráttunni um efri sæti deildarinnar en aðeins tvö stig skilja liðin að fyrir leikinn. Afturelding situr í þriðja sæti með 23 stig á meðan ÍBV er í sjötta sæti með 21 stig og getur […]
Upphitun sem lofar sannkallaðri Þjóðhátíðarveislu

Telja má niður í stærsta partý ársins þegar Þjóðhátíðarupphitun 2026 fer fram – tónleikar sem ætlaðir eru til að kveikja í brekkusöngsandanum og hita landsmenn rækilega upp fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Með Stuðlabandið í fararbroddi og fjölbreyttan hóp vinsælla listamanna á sviði verður boðið upp á lög sem hafa markað Þjóðhátíð þessarar aldar, ásamt ómissandi sígildum smellum. Hér […]
Fullfermi á báðum togurum

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE eru að gera það gott. Bergey landaði tæplega 50 tonnum í Eyjum á laugardag og er aftur að landa þar fullfermi í dag. Vestmannaey landaði einnig fullfermi í Þorlákshöfn á mánudagskvöld. Rætt er við við skipstjórana á vefsíðu Síldarvinnslunnar í dag. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, var sáttur við […]
Dýpkun tefst í Landeyjahöfn – uppfært

Herjólfur siglir til Þorlákshafnar í stað Landeyjahafnar í dag vegna ófullnægjandi dýpis í síðarnefndu höfninni. Vegagerðin er ósátt með að ekki sé verið að dýpka í dag, en áætlað er að um 20 þúsund rúmmetra þurfi enn að fjarlægja og gæti verkið tekið allt að fjóra daga við hagstæð skilyrði. Óvissa er um siglingar Herjólfs […]
Framlag í Ferðasjóð íþróttafélaga tvöfaldast

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, undirritaði í dag fimm samninga með Willum Þór Þórssyni, forseta ÍSÍ, Jóhanni Steinari Ingimundarsyni, formanni UMFÍ, og Þórði Árna Hjaltested, formanni Íþróttasambands fatlaðra, sem saman leggja grunninn að uppbyggingu íþróttastarfs á árinu. Í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu segir að áhersla sé á að bæta og jafna tækifæri fólks til […]
Fullorðinsfimleikar hjá Rán

Fimleikafélagið Rán mun í mars bjóða upp á sérstakt námskeið í fullorðinsfimleikum. Um er að ræða fjögurra vikna námskeið þar sem fullorðnum (16 ára og eldri) býðst að koma að æfa fimleika. Námskeiðið hentar fullorðnum á öllum getustigum sem vilja prófa skemmtilega og fjölbreytta hreyfingu í góðum félagsskap. Æfingar fara fram á fimmtudögum kl 19:15 […]
Tómas Bent með sigurmark Hearts

Eyjamaðurinn Tómas Bent Magnússon var hetja Hearts í kvöld þegar hann skoraði sigurmarkið í gríðarlega mikilvægum sigri gegn Hibernian, í Skosku úrvalsdeildinni í fótbolta. Tómas byrjaði leikinn á bekknum en kom inn á þegar um 15 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Aðeins 12 mínútum síðar var Tómas búinn að skora sigurmark leiksins. Harry Milne […]
Tilboð langt undir áætlun í dýpkun Landeyjahafnar

Sjótækni ehf. á Tálknafirði átti lægsta tilboðið í viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar á árunum 2026 til 2029 þegar tilboð voru opnuð í dag, 10. febrúar. Tilboð fyrirtækisins hljóðaði upp á tæpa 1,19 milljarða króna og er það umtalsvert undir kostnaðaráætlun verkkaupa. Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í verkið, en gert er ráð fyrir að dýpka þurfi á bilinu […]