ÍBV mætir FH í undanúrslitum

FH og ÍBV mætast í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar karla í handknattleik. Það varð ljóst eftir að liðin sendu andstæðinga sína, Selfoss og Stjörnuna, í sumarfrí í gærkvöldi. ÍBV vann Stjörnuna öðru sinni í hörkuleik í TM-höllinni, 27:23. FH fór létt með Selfoss í Sethöllinni á Selfossi, 33:24. Fyrsti leikur FH og ÍBV verður í Kaplakrika […]

Rútuferð: Stjarnan – ÍBV á morgunn

Nú er úrslitakeppnin komin á fullt og tímabært að fá alla með í bátana og láta vaða á þetta! Alvöru stuð og stemning hefur einkennt ÍBV í úrslitakeppni undanfarin ár og núna verður engin breyting á! Handknattleiksdeild ÍBV vill kanna áhuga á rútuferð á leik ÍBV og Stjörnunnar, leik 2 í 8 liða úrslitum karla. […]

Úrslitakeppni karla hefst á morgunn

ÍBV mætir Stjörnunni í 8 liða úrslitum og verður fyrsti leikurinn á morgunn laugardag kl.14:00, heima í Eyjum. Miðasala er hafin á miðasöluappinu Stubbur!. Frítt er fyrir börn á grunnskólaaldri/iðkendur ÍBV. Oft er þörf en nú er nauðsyn. Fyllum Íþróttamiðstöðina af hvítum treyjum og hvetjum okkar menn til sigurs! Áfram ÍBV Alltaf, alls staðar! (meira…)

Róbert Sigurðarson til Drammen

Róbert Sigurðarson hefur skrifað undir samning hjá norska úrvalsdeildarliðinu Drammen. Fram kemur á facebook síðu ÍBV Handbolti að Róbert hefur verið einn albesti varnarmaður landsins undanfarin ár og verið algjör lykilmaður í varnarleik ÍBV. Hann gekk til liðs við ÍBV haustið 2017 á láni frá liði Akureyrar. Haustið 2019 voru svo gerð endanleg félagaskipti til […]

Knattspyrnufélagið Valur sendir frá sér yfirlýsingu

Knatt­spyrnu­fé­lagið Valur hefur sendi í morgun frá sér yfir­lýsingu vegna eftir­mála leiks Vals og ÍBV í meistara­flokki kvenna þann 25. febrúar síðast­liðinn rúmum mánuði eftir atvikið. En þjálfari ÍBV, Sigurður Braga­son, var úr­skurðaður í tveggja leikja bann vegna ó­í­þrótta­manns­legrar hegðunar eftir leikinn. Yfirlýsinguna í heild sinni má lesa hér að neðan. Yfirlýsing. Knattspyrnufélagið Valur vill […]

ÍBV deildarmeistari 2023

ÍBV varð í dag deildarmeistari í Olísdeild kvenna í handknattleik. Liðið innsiglaði titilinn með sigri á Selfoss á heimavelli, 41:27, eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 21:15. Sigurinn var jafnframt sá tuttugasti í röð hjá liðinu. Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 2004 sem ÍBV verður deildarmeistari í handknattleik kvenna en […]

Geta orðið deildarmeistarar í dag

Það er nóg um að vera í íþróttamiðstöðinni í dag þar sem bæði karla og kvenna lið ÍBV standa í ströngu. Veislan hefst klukkan 14:00 þegar karlaliðið tekur á móti liði Fram. Fram er í 7. sæti með 21 stig en ÍBV í því þriðja með 24 stig. Keppnin um 2. til 7. sæti deildarinnar […]

Hanna og Sunna í 20 leikmanna hóp

Þjálfarateymi A landsliðs kvenna hefur valið 20 leikmenn til æfinga fyrir umspilsleiki liðsins um laust sæti á HM 2023 gegn Ungverjalandi. Liðin mætast að Ásvöllum 8. apríl nk. og síðari leikurinn fer fram í Ungverjalandi 12. apríl. Það lið sem vinnur sameiginlega báðar viðureignir tryggir sér sæti á heimsmeistaramótinu sem haldið verður 30. nóvember – […]

Mikilvægur leikur hjá stelpunum

Það er skammt stórra högga á milli hjá handbolta stelpunum en leikmenn KA/Þórs eru komnar til Eyja og leika við nýkrýnda bikarmeistara ÍBV í kvöld í viðureign sem tilheyrir 15. umferð Olísdeildar sem að öðru leyti fór fram í byrjun febrúar. Flautað verður til leiks í íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum klukkan 17.30. Stelpurnar geta með sigri […]

Mikilvæg stig í boði í Skógarseli

Einn leikur fer fram í Olísdeild karla í kvöld þegar ÍR fær ÍBV í heimsókn. Þau eru mikilvæg stigin sem eru í boði í dag því ÍR situr í 11. og næst neðsta sæti deildarinnar og berst fyrir lífi sínu í deildinni. ÍBV getur með sigri komist upp að hlið FH í öðru sæti deildarinnar. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.