Rútuferð: Stjarnan - ÍBV á morgunn
Nú er úrslitakeppnin komin á fullt og tímabært að fá alla með í bátana og láta vaða á þetta! Alvöru stuð og stemning hefur einkennt ÍBV í úrslitakeppni undanfarin ár og núna verður engin breyting á!
Handknattleiksdeild ÍBV vill kanna áhuga á rútuferð á leik ÍBV og Stjörnunnar, leik 2 í 8 liða úrslitum karla.
Leikurinn fer fram í Mýrinni í Garðabæ á morgun, þriðjudaginn 18.apríl kl.18:00
Planið er eftirfarandi:
Herjólfur kl.14:30 frá Eyjum (frítt í Herjólf fyrir þá sem fara með rútunni)
Farið beint í Mýrina á leikinn, sem hefst kl.18:00, að hvetja peyjana okkar til sigurs.
Herjólfur kl.23:15 frá Landeyjahöfn.
Miðinn í rútuna kostar 4.000 kr.- (2.000 kr.- fyrir hvern legg) á mann en svo fá þeir sem koma í rútuferðina frítt far í Herjólf í boði Herjólfs ohf!
ATH, ef siglt verður í Þorlákshöfn á morgun fellur ferðin niður.
ATH, greitt á staðnum og börn 15 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum!
Vinsamlegst fyllið út eftirfarandi form til að skrá ykkur í rútuferðina. Síðasti séns til að skrá sig er á miðnætti í kvöld, mánudaginn 17.apríl.
Áfram ÍBV
Alltaf, alls staðar!

Nýjustu fréttir

Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga
Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku
Nei, það er ekki glæpur
Nethamar hætt starfsemi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.