Bæjaryfirvöld hafna samantekt úr opnu bókhaldi – án leiðréttingar
Opna bókhald Vestmannaeyjabæjar sýndi 12. nóvember bókuð gjöld að fjárhæð 30.465.259 krónur til AX Lögmannsþjónustu á árinu 2026. Um lifandi bókhaldsgögn er að ræða sem geta tekið breytingum við yfirferð og leiðréttingar.
TMS M Frett 26 (2)
Tryggvi Már
Sæmundsson

Forsvarsmenn Vestmannaeyjabæjar hafna því að samantekt Eyjafrétta á greiðslum til lögfræðiþjónustuveitenda sé rétt. Þeir leggja þó hvorki fram leiðréttar tölur né benda á hvaða færslur eigi ekki heima í samantektinni. Gögnin sem unnið var úr koma úr opnu bókhaldi sveitarfélagsins.

Samantekt Eyjafrétta byggist á upplýsingum úr opnu bókhaldi Vestmannaeyjabæjar. Þar voru teknar saman bókaðar færslur til aðila sem veita lögfræðiþjónustu á árunum 2019 til 2026.

Samkvæmt samantektinni námu færslurnar um 1,7 milljónum króna árið 2019, 2,1 milljón árið 2020, 4,5 milljónum árið 2021, 6,2 milljónum árið 2022, 14 milljónum árið 2023, 28,9 milljónum árið 2024 og 34,6 milljónum árið 2025.

Gögnin fyrir árið 2026 eru lifandi og hafa tekið breytingum frá því að samantektin var fyrst unnin. Þegar staðan í opna bókhaldinu var könnuð 12. nóvember námu færslur til þeirra lögfræðiþjónustuveitenda sem Eyjafréttir höfðu tekið saman að minnsta kosti 37,1 milljón króna. Þar af námu færslur til AX Lögmannsþjónustu 30.465.259 krónum.

Um er að ræða bókaðar færslur samkvæmt opnu bókhaldi eins og það stóð á hverjum tíma. Tölurnar geta því breyst við nýjar færslur, yfirferð eða leiðréttingar.

Sögðu tölurnar rangar

Eyjafréttir sendu bæjaryfirvöldum tíu spurningar vegna samantektarinnar og gáfu sveitarfélaginu kost á að staðfesta tölurnar, leiðrétta þær eða skýra hvernig bæri að túlka gögnin.

Fyrsta spurningin var hvort bæjaryfirvöld staðfestu að fjárhæðirnar væru réttar samkvæmt bókhaldi sveitarfélagsins. Svarið var eitt orð:

„Nei.“

Ekki kom fram hvaða fjárhæðir væru rangar, hvaða færslur ættu ekki að teljast með eða hverjar réttar tölur væru að mati bæjaryfirvalda.

Forsvarsmenn Vestmannaeyjabæjar voru einnig spurðir hvort fjárhæðirnar væru með eða án virðisaukaskatts. Í svarinu segir að lögfræðiþjónusta sé með virðisaukaskatti.

Spurt var hvort gögnin sýndu greidda reikninga, bókfærð gjöld eða kostnað sem kynni að hafa verið færður með öðrum hætti. Svarið var „já“, án frekari skýringar á því við hvaða hluta spurningarinnar svarið ætti.

Þegar spurt var hvort greiðslur til þjónustuveitendanna gætu einnig náð til annarrar þjónustu eða útlagðs kostnaðar var svarið:

„Já, nei, já.“

Opið bókhald ekki fullnaðaruppgjör

Í svörunum kemur fram að opna bókhaldið byggist á tölum núverandi reksturs án tillits til yfirferðar og leiðréttinga. Það er mikilvægur fyrirvari og ástæða þess að Eyjafréttir vísa til færslna í opnu bókhaldi en ekki endanlegs, uppgjörslegs lögfræðikostnaðar.

Sá fyrirvari skýrir þó ekki hvaða tölur í samantektinni eru rangar eða hvernig eigi að leiðrétta þær. Eyjafréttir hafa heldur ekki haldið því fram að allar greiðslur til lögmannsstofa tengist sömu verkefnum eða að hækkun þeirra sýni ein og sér fram á óeðlileg útgjöld.

Tilgangur fyrirspurnarinnar var einmitt að fá skýringar bæjaryfirvalda á færslunum og þróun þeirra.

Vatnsveitan skýrir stóran hluta

Forsvarsmenn Vestmannaeyjabæjar segja hækkun kostnaðar einkum skýrast af verkefnunum NSL-3 og NSL-4. Auk þess nefna þeir innheimtu vangoldinna fasteignagjalda, útboðsþjónustu og ráðgjöf vegna meðal annars sérverkefna, barnaverndarmála, kærumála, ráðningarmála og framkvæmda- og skipulagsmála.

Aðspurðir um árin 2024 og 2025 vísa þeir sérstaklega til NSL-3 og NSL-4. Um 70% kostnaðarins á árunum 2024 til 2026 tengist samkvæmt svarinu Vatnsveitu Vestmannaeyja vegna þessara verkefna.

NSL-3 var eldri neðansjávarlögn Vatnsveitunnar. Um hana hefur meðal annars verið rekinn umfangsmikill réttarágreiningur milli Vestmannaeyjabæjar og Vinnslustöðvarinnar. Vestmannaeyjabær hefur áfrýjað sýknudómi héraðsdóms í málinu. NSL-4 er ný almannavarnalögn sem lögð var til Eyja árið 2026.

Fram komnar skýringar benda því til þess að stærstur hluti þeirra færslna sem um ræðir tengist umfangsmiklum verkefnum og réttarágreiningi vegna vatnsveitunnar.

Engin dagsetning gefin vegna ársins 2026

Eyjafréttir spurðu sérstaklega til hvaða dags gögn ársins 2026 næðu og hvaða verkefni skýrðu kostnað ársins. Í svarinu var aðeins vísað til NSL-4. Ekki var svarað til hvaða dags gögnin næðu.

Vegna þess að opna bókhaldið er uppfært reglulega hefur fjárhæðin hækkað frá því að upphaflega samantektin var gerð. Skjáskot úr kerfinu 12. nóvember sýnir að færslur til AX Lögmannsþjónustu einnar námu þá rúmum 30,4 milljónum króna á árinu.

Bærinn sagðist ekki hafa samantektina

Spurt var hvort aðkeypt lögfræðiþjónusta gæti verið bókuð á fleiri þjónustuveitendur en þá sem bæru auðþekkjanlegt heiti lögmannsstofu eða lögfræðiþjónustu og kæmu því ekki fram í samantektinni.

Svarið var að Vestmannaeyjabær væri ekki með samantekt Eyjafrétta og gæti því ekki sagt til um það.

Í fyrirspurninni voru hins vegar tilgreindar heildarfjárhæðir hvers árs og skýrt að samantektin byggðist á opnu bókhaldi sveitarfélagsins. Bæjaryfirvöldum var jafnframt boðið að leiðrétta tölurnar eða skýra hvaða færslur ættu ekki að teljast með.

Bíða niðurstöðu úrskurðarnefndar

Eyjafréttir hafa frá því fyrr á árinu óskað eftir reikningum vegna aðkeyptrar lögfræðiþjónustu Vestmannaeyjabæjar árin 2024 og 2025, bæði vegna gjaldfærðs og eignfærðs kostnaðar.

Vestmannaeyjabær synjaði beiðninni. Sú ákvörðun var kærð til úrskurðarnefndar um upplýsingamál 1. apríl og er niðurstöðu nefndarinnar enn beðið.

Reikningarnir myndu gera Eyjafréttum kleift að greina með meiri nákvæmni hvaða þjónusta liggur að baki greiðslunum. Á meðan þeir hafa ekki verið afhentir byggist umfjöllunin á þeim upplýsingum sem bæjarfélagið sjálft birtir í opnu bókhaldi sínu.

Það er því eðlilegt að bæjaryfirvöld geri skýra grein fyrir því hvaða tölur þeir telja rangar og leggi fram leiðréttingu. Einföld höfnun án frekari skýringa svarar ekki þeim spurningum sem lagðar voru fyrir þá.

Nýjustu fréttir

Bæjaryfirvöld hafna samantekt úr opnu bókhaldi – án leiðréttingar
Kristín Klara valin í lokahóp U19 landsliðsins
SFS vilja lækka kolefnisgjald sem hefur meira en tvöfaldast frá 2024
Námið mætir barninu þar sem það er statt 
Arnór skoraði níu mörk í tapi Karlskrona
Nóvemberblað Eyjafrétta komið út
Eyjamenn geta farið upp fyrir Aftureldingu með sigri
Lions býður upp á fría blóðsykursmælingu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.